fjárhagsstaða framhaldsskólanna.
Virðulegur forseti. Það er mikið fagnaðarefni að menntakerfið sé svona opið og bæði framhaldsskólastigið og háskólastigið geti tekið á móti þúsundum nemenda án þess þó að bogna. Það er það sem er raunverulega að gerast. Það eru alveg framúrskarandi rektorar og skólameistarar úti um allt land. Ég vil bara minna okkur öll á að það er ekki sjálfsagt að geta tekið á móti þúsundum nýrra nemendum í svona stöðu en það getur íslenska menntakerfið
Aðeins er varðar Háskólann á Akureyri þá langar mig að minna þingheim á að í þróun framlaga til Háskólans á Akureyri er aukning á tímabilinu 2016–2021 um 51,6%. Ef við berum hann saman við Háskóla Íslands er hækkunin þar 35,6%. Við höfum verið að bæta verulega í Háskólann á Akureyri og allt háskólastigið, sem er auðvitað mikið fagnaðarefni. En eins og ég hef upplýst hv. þingmann um er verið að skoða (Forseti hringir.) þessa einstöku skóla og við erum sannarlega stolt af menntakerfinu okkar.