svör við fyrirspurnum.
Virðulegur forseti. Mig langar að leita hér ráða og óska liðsinnis hæstv. forseta varðandi skriflegar fyrirspurnir sem er ósvarað. Það eru tvær sem liggja mér nokkuð á hjarta. Annars vegar er það fyrirspurn til hæstv. menntamálaráðherra sem nú er orðin 302 daga gömul og snýr að sekta- og bótagreiðslum Ríkisútvarpsins. Upphaflega var hún lögð fram 4. febrúar 2020 og síðan ítrekuð 13. október þegar þing kom saman.
Síðan er önnur fyrirspurn sem snýr að nýja Landspítalanum ohf. og kostnaðaráætlunum við uppbyggingu nýja Landspítalans. Hún var upphaflega lögð fram 21. janúar 2020 og er því orðin 316 daga gömul. Báðar eru þessar fyrirspurnir þeirrar gerðar að ég gef mér að hæstv. ráðherrar séu að kalla eftir upplýsingum frá annars vegar Ríkisútvarpinu og hins vegar nýjum Landspítala ohf., sem eru opinber hlutafélög. Mögulega er vandamálið þarna að upplýsingaflæði er ekki með eðlilegum hætti. Ég vil leita liðsinnis hæstv. forseta hvað það varðar að ýta á eftir þessum tveimur fyrirspurnum.