breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.
Herra forseti. Stutta svarið er auðvitað: Já. Mér finnst eðlilegt að menn endurskoði kolefnisgjöld, eins og í raun alla skattheimtu ríkisins og álögur, með reglulegu millibili. Komi fram efnislega rökstuddar ábendingar um galla í framkvæmd þeirrar skattheimtu er ég fyrsti maðurinn til að hlusta á það og ég tala nú ekki um ef það er til að létta byrðar. En það er nú samt sem áður þannig að kolefnisgjaldið er að einhverju leyti, kannski að mestu leyti, skattur sem við erum að greiða fyrir að menga. Hann er einhvers konar gjald sem við greiðum öðrum fyrir að nota mengandi orkugjafa. Að því leyti get ég sagt: Það er auðvitað stefna okkar, og ég hélt að hv. þingmaður væri með okkur í því, að reyna að ná sjálfstæði í orkumálum, að við hættum að vera háð erlendum orkugjöfum og nýtum okkar innlendu orkugjafa og þá sleppi ég því að nefna umhverfissjónarmið, sem þó skipta gríðarlega miklu máli, og nefni bara efnahagsleg sjónarmið. Það sparar ekki bara gjaldeyri heldur er það líka stórkostlegt þjóðaröryggismál. Ég hefði einmitt haldið að Miðflokkurinn ætti að vera fremstur í flokki í því að berjast fyrir nýtingu innlendra orkugjafa og hafna hinum erlendu. Kannski hef ég misskilið málflutning Miðflokksins.