151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[16:14]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Hv. þingmaður taldi hér upp þessi göfugu markmið en þessi skattur skilar ekki þeim árangri að við náum þeim markmiðum. Það er bara þannig. Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hefur lýst því yfir, í sinni skýrslugerð, að þessi skattur virkar ekki eins og menn halda að hann eigi að virka. Hann virkar ekki eins og menn, t.d. hæstv. umhverfisráðherra, segja að hann eigi að virka. Þessum skatti er ekki jafnað niður á landsmenn með sanngjörnum hætti. Hann bitnar verst á tekjulágu fólki. Ég hvet þingmenn til að skoða þessa skýrslu, það hefur enginn fjallað um hana.

Það er alveg ljóst að finna þarf aðrar leiðir en þessa skattheimtu til að ná þeim markmiðum sem hér er rætt um. (Forseti hringir.) Ég fagna því að hv. þingmaður er sammála mér í því að endurskoða þurfi þennan skatt og fara yfir hann. Ég ætla svo sannarlega að vona að hann beiti sér þá fyrir því innan efnahags- og viðskiptanefndar, þar sem hann er formaður, og innan síns flokks og vonandi innan ríkisstjórnar.