breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.
Herra forseti. Ég get tekið undir með hv. þingmanni hvað þetta síðasta varðar en vara hins vegar við því að erfðafjárskattur sé lækkaður mikið á sama tíma og eignaójöfnuður er að aukast í landinu. Það eru önnur viðmið sem sett voru árið 2010 og það eru viðmið fyrir vaxtabætur. Vaxtabótakerfið hefur í raun rýrnað um næstum því 100% frá árinu 2010 sem gerir það að verkum að kerfið styður sífellt færri heimili. Tekjulágt barnafólk sem á lítið eigið fé í húsnæði sínu fær nú lítinn sem engan stuðning í gegnum kerfið. Í minnisblaði frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu til nefndarinnar segir að óbreyttar viðmiðunarfjárhæðir leiði til að vaxtabæturnar fari í auknum mæli til þeirra sem eru í efri hluta tekjudreifingarinnar og um helmingur upphæðarinnar fari til þeirra sem eru 48 ára eða eldri. Vil ég biðja hv. þingmann um að tjá sig um þessa þróun á húsnæðisbótakerfi.