breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.
Herra forseti. Mig langar að spyrja hv. þingmann út í ívilnanir til hreinorkubíla, og því sem næst hreinorkubíla. Í fyrsta lagi kom mér hreinlega á óvart að okkur hefði yfirsést að fella niður virðisaukaskatt við endursölu vistvænna bíla alveg eins og við sölu nýrra bifreiða. Ég held að það sé bara eitthvað sem við þurfum að taka til okkar allra hér í sal að hafa ekki áttað okkur á því þegar við settum þá heimild í lögin. Auðvitað á það sama að gilda um nýskráða bíla og eldri, orkuskiptin eiga jafnmikið við þannig að ég fagna því að nefndin hafi komið auga á það og sé að lagfæra. (ÓBK: Við fengum hjálp.)Nefndin fékk hjálp frá sérfræðingum.
En mig langar að spyrja frekar út í hina tillögu meiri hlutans, varðandi það að fresta lækkun á ívilnun til tengiltvinnbíla vegna þess að þetta er annað árið í röð sem meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar leggur til slíka frestun. Mig langar að spyrja í fyrsta lagi hvort lagt hafi verið mat á kostnaðinn við það. Ívilnunin er umtalsverð, hún átti að lækka úr 960.000 á hvern bíl niður í 600.000 nú um áramótin. Það er mikill peningur til bíla sem áhöld eru um hversu hreinir séu. Í nefndarálitinu stendur jafnframt að nefndinni hafi borist ábendingar um að í samræmi við stefnu stjórnvalda í orkuskiptum standi rök til þessarar frestunar. Mig langar bara að fá skýrt frá hv. þingmanni frá hverjum þær ábendingar hafi borist. (Forseti hringir.) Það er sem sagt uppruni þessarar hugmyndar varðandi tengiltvinnbílana og mat á kostnaði hins opinbera við þá ívilnun á næsta ári.