151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[16:46]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég biðst forláts á hversu lengi ég var að koma mér í pontu. Það er langt í sæti mitt samkvæmt nýrri sætaskipan. Ég þakka hv. þm. Oddnýju Harðardóttur framsöguna þar sem hún mælti fyrir minnihlutaáliti sínu. Í 1. efnislið nefndarálits hv. þingmanns er fjallað um hækkun ýmissa gjalda. Þar segir m.a., með leyfi forseta:

„Lagt er til að kolefnisgjald, olíugjald, almennt og sérstakt kílómetragjald, almennt og sérstakt bensíngjald, gjald á áfengi og tóbak, gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra og gjald til Ríkisútvarpsins hækki um 2,5% en ekki 3,2% í samræmi við verðbólguspá Hagstofu Íslands.“

Mig langar í þessu samhengi og í ljósi almennrar umræðu um heildarskattlagningu á Íslandi og gjaldaálögur að spyrja: Skil ég það rétt að hv. þingmaður sé hér að leggja til að öll þessi gjöld hækki meira en gert er ráð fyrir? Þeim sem hér stendur þykir nóg um. Á þessum sérstöku tímum sem uppi eru, í þessu Covid-ástandi, hefði mögulega átt að skoða það að láta gjöld sem þessi ekki fylgja verðlagi, eins og var gert í ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar á árunum 2013–2016. Ég er nú ekki með í kollinum hvaða ár það var sem gjöld sem þessi voru ekki látin hækka samkvæmt vísitölu eða ætlaðri vísitölu.

Leggur hv. þingmaður það til að hækkunin verði enn meiri en sem nemur þessum 2,5%? Ég sé ekki breytingartillögu í fljótu bragði hvað það varðar. Er þetta bara ábending og sýn Samfylkingarinnar sem þarna er talað fyrir?