151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[16:48]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Nei, það er ekki svo að sú sem hér stendur sé að leggja til að gjöldin hækki meira. Ég er bara að draga fram að gjöldunum er ætlað að standa undir ákveðnum kostnaði. Sá kostnaður hækkar í réttu hlutfalli við verðbólguna og ef lægri gjöld eru innheimt ár eftir ár myndast bil sem þarf að brúa. Ég er einfaldlega að benda á það. Ég skil það hins vegar mætavel og ég veit að fleiri ríkisstjórnir hafa gert þetta, að halda sig bara við verðbólgumarkmið Seðlabankans til að hækka gjöld svo ríkið verði ekki til þess að verðlagið fari upp á við og þá verðbólgan um leið. Mér finnst það mjög skiljanlegt. Ég var aðeins að benda á að þarna gæti myndast bil sem þarf að brúa. Það má vera, herra forseti, að ég hefði þurft að tala skýrar í nefndarálitinu fyrst hv. þingmaður misskilur mig svo hrapallega. Ég er alls ekki að tala um að það þurfi að hækka þessi gjöld en mér finnst sjálfsagt að endurskoða alla gjaldtöku ríkisins. Það má vera að í sumum tilfellum sé hún bara allt of há og það má vera að í öðrum tilfellum þurfi að laga gjaldtökuna að þeim kostnaði sem henni er ætlað dekka. Við erum með alls konar gjöld og miklu fleiri, eins og ég sagði í ræðu minni áðan, en nefnd eru í þessum bandormi. Við þurfum að skoða þau öll og meta. Stundum þarf ekki að hækka neitt (Forseti hringir.) vegna þess að kostnaðurinn sem á að dekka hefur kannski bara dregist saman.