breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með breytingartillögu frá 2. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar. Sá minni hluti er sá sem hér stendur, sem er þingmaður Viðreisnar. Ég ætla að byrja á því að fjalla aðeins um nokkrar umsagnir sem bárust nefndinni en þær voru samtals 18. Ég ætla að víkja að nokkrum þeirra og sjónarmiðum sem 2. minni hluti tekur undir. Einnig verður fjallað um tilvik þar sem 2. minni hluti getur ekki tekið undir sjónarmið og breytingar sem fram koma í þeim umsögnum, og meiri hluti nefndarinnar leggur til.
Ég ætla að byrja á því að nefna umsögn sem kom frá tveimur ungum konum, Önnu Maríu Allawawi Sonde og Sögu Maríu Sæþórsdóttur, en í þeirri umsögn er skorað á stjórnvöld að fella niður virðisaukaskatt af tíðavörum og tryggja að þær verði aðgengilegar í grunn- og framhaldsskólum. Bent er á að stúlkur þurfi á vörunum að halda frá ungum aldri, áður en þær afla sér eigin tekna. Þær verði því að leita aðstoðar forráðamanna eða annarra til kaupa á slíkum vörum sem reynist mörgum erfitt.
Annar minni hluti tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í umsögninni. Mikilvægt er að auka aðgengi að þessum vörum sem og getnaðarvörnum fyrir ungt fólk. Í því samhengi má nefna að Skotar hafa nýverið ákveðið að tíðavörur skuli unnt að nálgast án endurgjalds. Tíðavörur eru ekki neysluvörur heldur nauðsynjavörur. Oft er talað um skattlagningu af þessu tagi sem bleikan skatt sem mismunar kynjum.
Með lögum nr. 67/2019 var ákveðið að færa þessar vörur úr hærra þrepi virðisaukaskatts í það lægra. 2. minni hluti telur tímabært að taka til ítarlegrar skoðunar að stíga skrefið til fulls og fella niður virðisaukaskatt af tíðavörum og getnaðarvörnum. Hvetur 2. minni hluti til þess að það verði gert. Jafnframt verði skoðað hvort unnt skuli að nálgast tíðavörur og getnaðarvarnir endurgjaldslaust, a.m.k. þegar ungmenni eiga í hlut.
Næst ætla ég aðeins að víkja að umsögn frá BRSB og erfðafjárskatti. Í umsögn BSRB segir um fyrirhugaðar breytingar á erfðafjárskatti, með leyfi forseta:
„BSRB telur eðlilegt að skattfrelsismörk hækki árlega til samræmis við verðlag en telur hækkun á skattfrelsismörkum um 3,5 millj. kr. of mikla miðað við núverandi efnahagsaðstæður og tekjufall ríkissjóðs.“
Annar minni hluti tekur að hluta til undir þessi sjónarmið en telur jafnframt, og Viðreisn hefur talað fyrir því, rétt að gera umtalsverðar breytingar á erfðafjárskatti. Frumvarpið sem hér er til umræðu gerir ekki ráð fyrir slíkum breytingum en það sem lagt er til er í sjálfu sér góðra gjalda vert. Á hinn bóginn tekur 2. hluti minni hluti undir þau sjónarmið að rétt væri að fresta þessari breytingu um eitt ár í ljósi stöðu í ríkisfjármálum og leggur fram breytingartillögu þess efnis.
Þá verður vikið að umsögn frá Landvernd en þar er m.a. bent á mikilvægi kolefnisgjalds í baráttunni við loftslagsbreytingar. Þar segir m.a., með leyfi forseta:
„Eins og komið hefur fram í mörgum umsögnum Landverndar telur stjórn samtakanna að hátt kolefnisgjald sé nauðsynleg og réttlát leið til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Þar er mengunarbótareglan (e. polluter pays principle) virkjuð. Auk þess hafa alþjóðastofnanir og nágrannalönd okkar sýnt fram á að hátt kolefnisgjald virkar vel án þess að hafa neikvæð áhrif á efnahaginn. […] Í þessu frumvarpi er lagt til að kolefnisgjald á eldsneyti (1. gr.) og gjald vegna losunar gróðurhúsalofttegunda utan ETS (27. gr.) hækki eingöngu um 2,5%. Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 5% frá því í desember 2018 þegar gjaldið var síðast hækkað. Þessi hækkun nú heldur því ekki einu sinni í við verðlagsþróun.“
Annar minni hluti tekur undir þessi mikilvægu sjónarmið og bendir á að það sé nauðsynlegt að hækka kolefnisgjald og gjald vegna losunar gróðurhúsalofttegunda í áföngum á næstu fáu árum. Þess vegna leggur 2. minni hluti til að fyrsta skrefið verði stigið nú og að í stað 2,5% hækkunar verði gjöldin hækkuð um 5% til samræmis við hækkun á vísitölu neysluverðs.
Samhliða þessu telur 2. minni hluti brýnt að ríkisstjórnin nýti fjármagnið sem kolefnisgjald og gjald vegna losunar gróðurhúsalofttegunda skila til að skapa hvata til aukinnar bindingar gróðurhúsalofttegunda með endurheimt votlendis, skógrækt og nýsköpun á sviði bindingar í jarðvegi.
Þá bárust nokkrar umsagnir sem vörðuðu sóknargjald, m.a. frá þjóðkirkjunni, Sóknasambandi Íslands, Seljakirkju og Gísla Jónssyni. Þær fela í megindráttum í sér kröfu um að sóknargjöld verði hækkuð. Í umsögn frá þjóðkirkjunni segir m.a., með leyfi forseta:
„Kirkjuráð lýsir yfir vonbrigðum með framangreinda fjárhæð“ — þ.e. fjárhæðina sem er í frumvarpinu — „og þá staðreynd að fyrirhugað er að skerða sóknargjöldin þrettánda árið í röð svo tekjur trúfélaga og safnaða verða 54% af því sem þær ættu að vera en fjárhæð sóknargjalda ætti með réttu að vera um 1.815 kr., væri lögum um sóknargjöld o.fl., nr. 91/1987, framfylgt. […] Áréttað er að sóknargjöld eru ekki framlag ríkisins til trúfélaga og safnaða heldur skil innheimtuaðila á innheimtum félagsgjöldum viðkomandi aðila.“
Annar minni hluti telur ekki rök til þess að sóknargjöld verði hækkuð umfram það sem frumvarpið gerir ráð fyrir. 2. minni hluti telur rétt að hefjast þegar handa við að ríkið hætti innheimtu sóknargjalda fyrir trú- og lífsskoðunarfélög. Í umsögn þjóðkirkjunnar er enda bent á að skoðun hennar sé sú að um félagsgjöld sé að ræða. Mun betra væri því að viðkomandi sóknir eða lífsskoðunarfélög gætu sjálf ákveðið upphæð félagsgjalda hverju sinni og annast innheimtuna sjálf eins og önnur félög í landinu. Það er mikilvægur liður í því að auka sjálfstæði kirkjunnar, safnaða og lífsskoðunarfélaga. Þá geta þessi ágætu félög, og söfnuðir allir, hagað gjaldtöku sinni í samræmi við verkefni sín og eru ekki upp á náð og miskunn Alþingis komin um breytingar og innheimtu á þeim gjöldum. Það er hið eina rétta og sanngjarna fyrirkomulag sem ætti að vera í þeim efnum.
Þá vil ég víkja hér að sérstaklega þeim breytingartillögum sem eru þá nýjar og varða ekki efnisatriði frumvarpsins nema þó hið fyrra sem varðar áfengisgjald. Í frumvarpinu er lagt til að áfengisgjald hækki um 2,5% eins og aðrar tölur í því frumvarpi. 2. minni hluti getur ekki tekið undir slíka hækkun og leggur til að gjaldið verði óbreytt. Ekki þarf að fjölyrða um mikla rekstrarerfiðleika í veitingageiranum hvert sem litið er. Snar þáttur í rekstri flestra slíkra fyrirtækja er sala áfengis. Hækkun áfengisgjalds mun enn auka á þessa erfiðleika og draga úr getu rekstraraðila til þess að þrauka áfram næstu misseri. Þess vegna leggjum við fram breytingartillögu þess efnis að áfengisgjaldið verði ekki hækkað. Það er nauðsynlegt að við gerum það sem í okkar valdi stendur til þess að hjálpa þessum fyrirtækjum í gegnum vægast sagt erfiða tíma. Vissulega fylgir þessu að áfengisgjald hækkar ekki og gildir það um alla sem kaupa áfengi. En kerfið okkar er nú einu sinni þannig að það væri mjög þungt í vöfum að koma því þannig fyrir að gjaldið lækkaði einungis til þeirra sem hafa leyfi til sölu áfengis þannig að þessi leið er þess vegna farin.
Síðan eru líka lagðar til af hálfu 2. minni hluta breytingar sem varða tryggingagjald og lagt til að þar komi nýr kafli inn í frumvarpið. Launakostnaður dregur úr svigrúmi atvinnulífsins til að skapa ný störf og viðhalda störfum og um þessar mundir er á mjög mörgum sviðum mikil nauðsyn til þess að gera fyrirtækjum kleift að bæta við sig fólki en ekki síður, og það er kjarni máls, að draga úr óþolandi miklu atvinnuleysi og sannarlega alvarlegum afleiðingum langvarandi atvinnuleysis. Þess vegna leggur 2. minni hluti til að yfir 12 mánaða tímabil, á næsta ári, verði fyrirtækjum sem ráða starfsmenn sem voru á atvinnuleysisskrá eða án atvinnu við upphaf ráðningar veittur 50% afsláttur af fullu tryggingagjaldi. Verði sú leið farin mun það virka mjög hvetjandi fyrir fyrirtæki að ráða til sín nýtt fólk og það mun líka hjálpa mjög þeim fyrirtækjum sem hafa lent í miklum hremmingum, hafa þurft að segja upp fólki en eru að reyna að rétta úr kútnum, að fá tilslakanir af þessu tagi. Þetta eru tímabundnar tilslakanir í 12 mánuði.
Annar minni hluti tekur að öðru leyti undir þær breytingar sem meiri hlutinn leggur til. Sérstaklega er vert að nefna nýtt ákvæði um breytingar á lögum um tekjufallsstyrki, samanber 212. mál á yfirstandandi þingi, skattalega ívilnun tengiltvinnbíla og niðurfellingu virðisaukaskatts við endursölu vistvænna ökutækja.
Að öllu þessu virtu og með þeim breytingartillögum og athugasemdum sem ég hef hér rakið leggur 2. minni hluti til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingartillögum sem hér eru gerðar og þær eru í fjórum liðum. Þær varða í fyrsta lagi að kolefnisgjald verði hækkað meira en frumvarpið gerir ráð fyrir, um 5%, og eru krónutölubreytingar í samræmi við það.
Í öðru lagi er lagt til að 2. gr. falli brott sem fjallar um áfengisgjaldið og hækkun þess.
Í þriðja lagi er lagt til að nýr kafli komi á eftir 36. gr., sem fjallar um breytingarnar á tryggingagjaldinu, og þá myndi bætast við lögin um tryggingagjald nýtt ákvæði til bráðabirgða sem myndi hljóða í þessa veru:
„Þrátt fyrir 1. og 3. mgr. 2. gr. skal atvinnutryggingagjald vera 0,675% og almennt tryggingagjald vera 2,45% af gjaldstofni skv. III. kafla frá 1. janúar til 31. desember 2021 vegna launa eða þóknana manna sem hefja störf hjá gjaldskyldum aðila á tímabilinu og ráðnir eru af atvinnuleysisskrá eða voru án atvinnu við upphaf ráðningar.“
Síðan í fjórða og síðasta lagi er gert ráð fyrir því að við 37. gr., sem fjallar um erfðafjárskattinn og hækkun skattleysismarka þar, komi nýtt ákvæði sem frestar gildistökunni um eitt ár þannig að gildistaka þess verði ekki fyrr en 1. janúar 2022.
Ég hef nú farið yfir álit 2. meiri hluta. Hér er reynt að gæta hófs í tillögugerð. Hér er höfð í huga nauðsyn þess að ganga ekki um of á skattstofna ríkisins við þessar aðstæður og jafnframt að leggja fram tillögur sem hafa það allar að markmiði að bæta hag fólks sem er atvinnulaust, bæta hag fyrirtækja sem eru í erfiðleikum og síðast en ekki síst að okkur auðnist að geta stigið skref til framfara varðandi loftslagsmálin, sem eru eitt brýnasta verkefni samtímans. Þau verkefni mega ekki líða fyrir tímabundið ástand í efnahagsmálum. Þar verðum við að halda vöku okkar. Ég tel að síðustu, herra forseti, að þessar tillögur séu í senn hógværar og skynsamlegar.