151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[17:14]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Jón Steindór Valdimarsson) (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og athugasemdirnar. Ég er ekkert sérstaklega gefinn fyrir það að skilgreina kollega mína hér á þingi, nákvæmlega hvar þeir eru staddir á hinu pólitíska litrófi. Við tilheyrum jú öll okkar flokkum og erum held ég meira og minna þar með að segja að við göngumst undir þá stefnu sem þar er rekin. Við búum við þann lúxus í Viðreisn að vera miðjuflokkur. Sumir hallast til hægri og aðrir til vinstri og sumir eru bara á miðjulínunni. Það fer sjálfsagt eftir málefnum hvar ég er í þeim efnum.

En svo að ég snúi mér að spurningu hv. þingmanns þá er það þannig að kolefnisgjöldin eru aðferð til að knýja fram breytingar í samfélaginu, breytingar í þágu umhverfisins. Við höfum verið að fjalla um, og á því er meira að segja tekið í þessu sama frumvarpi, að við verðum að hvetja til orkuskipta í samfélaginu. Við þurfum að veita ívilnanir til að kaupa tiltekin tæki, fyrst og fremst bifreiðar, og liður í því að hvetja fólk til að skipta yfir í þá orkugjafa eru kolefnisgjöldin. Það var vitnað hér áðan í skýrslu frá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands varðandi kolefnisgjöldin. Þar er einmitt tekið fram að of lág kolefnisgjöld skili ekki tilætluðum árangri. Þau þurfi að hækka. (Forseti hringir.) Undir þau sjónarmið tek ég. Þetta stendur mjög skýrt í skýrslu frá Hagfræðistofnun Háskólans.