151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[17:24]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Jón Steindór Valdimarsson) (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Smára McCarthy kærlega fyrir jákvæða umsögn um nefndarálitið og jafnframt fyrir að viðra áhyggjur sínar varðandi hugmyndir um breytingar á tryggingagjaldinu vegna atvinnulausra. Ég skal ekki útiloka að þarna kunni að vera einhver freistnivandi. Satt að segja var ég ekki með þetta í huga, ég skal alveg viðurkenna það, en þetta gæti gerst. Ég efast reyndar um það, eins og hv. þingmaður gerði sjálfur, að menn fari unnvörpum að stunda þetta. En hugsunin er sú að þetta séu þá fyrst og fremst þau fyrirtæki sem eru að ráða nýja starfsmenn eftir erfiðleika o.s.frv. Við vitum að það er fullt af fyrirtækjum sem eru í góðum málum og allt það. Það kann vel að vera að það þurfi að skoða þetta. Ég efast ekki um að tekið verður vel í þessa hugmynd og þá þarf annaðhvort að setja það í reglugerð eða herða á orðalaginu. Það þyrfti þá að geta þess að menn mættu ekki hafa verið starfsmenn sama aðila eða að menn þyrftu alla vega að hafa verið lausir við starfsmanninn í ákveðinn tíma; miða mætti við einn mánuð eða tvo.

Ég veit ekki hvort ég skildi hv. þingmann rétt, að hann væri að velta því fyrir sér hvort þetta ætti að vera ótímabundið eða hvort þetta mætti byrja fyrr. Ég er að sjálfsögðu opinn fyrir því að skoða það vandlega.