breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.
Herra forseti. Ég þakka svarið og útskýringarnar. Nú náði ég því fullkomlega sem hv. þingmaður var að spyrja mig um. Minni hlutinn var að bögglast með að reyna að sníða þetta þannig að þetta kæmi þar sem þörfin væri mest, að þetta beindist að fyrirtækjum sem eru að ráða til sín nýtt fólk — eru að rísa úr öskustónni ef við viljum nota þá myndlíkingu — og væri líka öflugt verkfæri til að hvetja öll fyrirtæki til þess að ráða til sín fólk af atvinnuleysisskrá, en það er gríðarlega mikilvægt að fólk komist til vinnu. Það var hugsunin. Sem betur fer eru stórir hlutar hagkerfis okkar í góðum gangi en það má vel vera að full ástæða sé til að reyna að örva það enn frekar, einmitt af því að aðrir hlutar þess eru í vandræðum. Þá erum við farin að tala um hærri upphæðir o.s.frv. En ég vil hnykkja á því að hugsunin að baki þessu var að hafa þetta einhvern veginn sértækt. Ég skal þó ekki útiloka að hitt gæti verið þess virði að skoða.
Varðandi almennar hugleiðingar um skattkerfið, hvernig það fúnkerar, fyrir hverja það er o.s.frv., þá er það eitt af stóru kerfunum sem við búum við í okkar samfélagi og hefur gríðarleg áhrif á okkur öll, hvort sem um er að ræða einstaklinga eða fyrirtæki. (Forseti hringir.) Þess vegna eigum við alltaf að vera vakandi fyrir því og spyrja okkur spurninga um það, hvort það sé þénugt og hvar heildar- og almannahagsmunir liggi.