breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.
Herra forseti. Já, ég held að það sé auðvelt að segja að þetta sé frekar afleit forgangsröðun og þetta er reyndar hin hliðin, ég hefði kannski átt að fara í það í ræðu minni að þetta er eitt af því sem fer svo rosalega í taugarnar á mér, það er alltaf verið að hækka gjöldin en aldrei verið að hækka frítekjumörkin og aðrar ívilnanir. Það er t.d. búið að rýra verðmæti — nú er ég búinn að missa orðið, ég er ekki upp á mitt besta í dag þegar kemur að orðanotkun, ég viðurkenni það. Þessir hlutir, t.d. frítekjumörkin og persónuafsláttur, það er orðið sem ég var að leita að, og annað eru allt atriði sem hafa verið að rýrast, eiga ekki að rýrast, eiga jafnvel að taka stökk upp á við vegna þess að það er hreinlega þörf á því að veita þessar litlu ívilnanir til allra sem þurfa á þeim að halda.