151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[18:01]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Þó að ég hafi ekki skoðað þá skýrslu sem hv. þingmaður vísar til er það nú oft þannig að risarnir þola aukna gjaldtöku betur en þeir sem minni eru. Ég verð eiginlega að lýsa áhyggjum mínum af svari hv. þingmanns, sem ég þakka honum þó fyrir, þar sem fram kom hjá honum að það væri bara allt í lagi með þetta kolefnisgjald af því að það legðist bara á fyrirtæki. Það er auðvitað þannig að viðbótarkostnaður sem leggst á fyrirtæki landsins, bara á öll fyrirtæki í heiminum, endar auðvitað hjá neytendum enda er kaupandinn í flestum tilfellum einstaklingur eða heimili. Það er einhver grundvallarmisskilningur ef hv. þingmaður telur að hægt sé að leggja gjald á fyrirtæki og það hafi engin áhrif á útgjaldaþunga heimila. Hef ég misskilið hv. þingmann eitthvað eða er hann raunverulega þessarar skoðunar?