151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[18:02]
Horfa

Smári McCarthy (P) (andsvar):

Herra forseti. Nei, hv. þingmaður misskildi mig ekki, hann misskildi kannski hvernig verðmyndun virkar á markaði og hvernig hagfræði fúnkerar. Það er nefnilega nokkuð til sem heitir verðteygni og hún lýsir í rauninni hversu mikið fólk er tilbúið til að greiða fyrir tilteknar vörur. Við vitum að þegar svona gjöld rekast upp undir verðteygni neytenda breyta fyrirtækin hegðun sinni til að reyna að finna ódýrari leiðir til að komast hjá gjaldinu, t.d. með því að brenna minni olíu eða losa minni koltvísýring. Það hefur svo þau áhrif að neytendur fá í rauninni allan ábatann af því að stunda enn þá sömu viðskiptin við sömu fyrirtæki en án þess að úthrifin séu til staðar, þ.e., með leyfi forseta, „externalities“, sem hafa mjög neikvæð áhrif á lífríki jarðar. Höfum í huga að þetta snýst þegar upp er staðið um lífríki jarðar og ég get rétt ímyndað mér (Forseti hringir.) hversu mikill kostnaður mun leggjast á heimilin ef heimshöfin hækka, hlýnun verður svakaleg o.s.frv., (Forseti hringir.) ef verstu spár rætast um það sem gerist ef við náum ekki tökum á þessari mengun.