breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.
Virðulegi forseti. Já, það er vissulega rétt að versta hugsanlega niðurstaða væri bara handan allra mannlegra mælikvarða. Við einfaldlega getum ekki verðmerkt það. Það er líka nauðsynleg forsenda sem við þurfum að hafa í huga þegar við ræðum um að hækka þessi kolefnisgjöld að þess sé gætt að byggja upp aðra samgöngukosti fyrir almenning og byggja þá hratt og vel. Mig langar að spyrja hv. þingmann, í framhaldi af þessu, hvort hann telji það ekki dálítið brýnt að fara að gefa í með þá uppbyggingu og hvar hann myndi þá sjá fyrir sér helst að slík uppbygging gæti átt sér stað og hvernig.