151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[18:34]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Skýrslan er hér og ég held að ekki sé með nokkrum hætti hægt að mistúlka hana. Hún er mjög skýr. Ég hef farið yfir þessa fjóra þætti sem eru niðurstaðan í þessari skýrslu. Það kemur greinilega fram í henni að skatturinn bitni á efnalitlu fólki og hafi neikvæð áhrif á kjör þess og neyslu. Þess vegna mun ég aldrei samþykkja að þessi skattur muni hækka. Það er ekki tilgangurinn með tillögunni. Tilgangurinn með henni er einfaldlega að stjórnvöld átti sig á því hvað stendur í skýrslunni, með hve ósanngjörnum hætti þessum skatti er jafnað niður á landsmenn. Það segir í skýrslunni að það þurfi að rökstyðja betur hvers vegna skatturinn er lagður á. Umhverfisráðherra hefur viðurkennt í skriflegu svari við fyrirspurn hér á Alþingi að ekki sé hægt að segja til um hvaða árangri skattheimtan er að skila. Það er bara ekki forsvaranlegt, hv. þingmaður, að leggja skatt á með þessum hætti þegar búið er að viðurkenna að ekki sé hægt að segja til um hver árangurinn er. Það kemur fram í skýrslu óháðra aðila að hann bitni verst á þeim sem hafa minnst á milli handanna, að landsframleiðsla og atvinna geti minnkað verði kolefnisskatturinn lagður á og til þess að hann eigi að skila einhverju, sem er þá væntanlega það að menn hætti að nota jarðefnaeldsneyti, verði hann að vera mjög hár. Það sjá allir hvaða afleiðingar það getur haft þó að það væri ekki nema fyrir efnalítið fólk.