151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[18:36]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla að ítreka að mér þykir hv. þingmaður velja svolítið rökin úr skýrslunni. Ég ætla að fá að lesa eina setningu úr skýrslunni, með leyfi forseta:

„Ef fólk gerir sér grein fyrir að kolefnisgjöldin eru varanleg, og þar með verðhækkunin, mun það sennilega smátt og smátt útvega sér sparneytnari bensínbíla eða rafknúna bíla eða skipta jafnvel yfir í almenningssamgöngur. Verið getur að teygnin sé þar af leiðandi meiri til langs tíma litið.“

Þá er líka farið yfir hvaða áhrif þetta kann að hafa á fyrirtæki. Þar segir, með leyfi forseta:

„Það bendir til þess að verðteygni eldsneytiseftirspurnar fyrirtækja sé meiri en hjá heimilum. Fyrirtæki dragi með öðrum orðum meira en heimili úr notkun á eldsneyti þegar það hækkar í verði.“

Virðulegur forseti. Ég ætla að ítreka fyrirspurn mína til hv. þingmanns: Hver er stefna Miðflokksins þegar kemur að loftslagsmálum? Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki heyrt neitt úr þessum ræðustól um það hversu alvarleg loftslagsváin er eða hvernig Miðflokkurinn hyggst bregðast við því. Ég hef aftur á móti heyrt talaðar niður þær lausnir sem hefur verið komið með hér, heyrt Parísarsáttmálann talaðan niður og heyrt sagt að við eigum bara að spá í hvað Indland og Kína séu að gera.