151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[18:42]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég hefði kosið að hann hefði kannski sagt frá því hvaða rannsókn hann vitnar í frá 2018 því að það er búið að sýna fram á það af fjármála- og efnahagsráðuneytinu að íbúar á landsbyggðinni aka meira en þeir sem eru á höfuðborgarsvæðinu. Það þýðir náttúrlega að þeir þurfa að kaupa meira eldsneyti. Þessi skattur er á hvern lítra af eldsneyti, dísilolíu og bensíni. Það segir sig sjálft að það hefur meiri áhrif á þá sem búa á landsbyggðinni, sem aka meira. Auk þess er það þannig að það hafa ekki allir efni á því að kaupa sér rafmagnsbifreið og net hleðslustöðva er ekki það þétt á landsbyggðinni að það geti talist heppilegt á öllum stöðum að hafa rafmagnsbifreiðar þar. Auk þess eru ekki nein teikn um það á lofti að rafmagnstæki, véltæki í landbúnaði og annað slíkt, séu í boði þannig að landbúnaðurinn sem slíkur nýtir mikið dísilvélar. Það eru ýmis rök fyrir því sem segja að þetta bitni verr á landsbyggðinni en höfuðborgarsvæðinu. Ég held að óhætt sé að fullyrða það.

Síðan spurði hv. þingmaður um hækkun á gjaldinu. Ég verð bara að segja að það fer ekkert á milli mála, og ég er búinn að rekja það hér, að gjaldið hefur hækkað gríðarlega í tíð þessarar ríkisstjórnar. Ég nefndi það sérstaklega, 3,5 milljarðar í 6 milljarða á þremur árum. Eigum við þá ekki líka, hv. þingmaður, að horfa til þess? (Forseti hringir.) Hverju hefur sú gríðarlega aukning skilað okkur? Það er búið að svara því. Það er ekki hægt að segja til um það. Það er ekki hægt að segja til um það hvaða árangri skatturinn hefur skilað. (Forseti hringir.) Það finnst mér vera það alvarlegasta í þessari umræðu.