151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[18:47]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Það var svo sem engin fyrirspurn hér, þetta var bara skoðun hans á sóknargjöldunum og ég er ósammála því sem hv. þingmaður sagði. Það blasir alveg við að þessi gjöld ættu að vera mun hærri hefðu þau ekki verið skert eftir efnahagshrunið 2009. Ég hef ekki verið að þjófkenna einn eða neinn, heldur var einfaldlega að vitna í það sem kom fram einhvern tímann í viðtali. Við verðum að átta okkur á því, og það kom fram í þessari umræðu, að það eru menningarverðmæti sem liggja undir skemmdum vegna þess að söfnuðir hafa ekki haft efni á því að sinna eðlilegu viðhaldi á kirkjum, sem eru menningarverðmæti og mikilvæg í menningarsögulegu tilliti þjóðarinnar. Það væri afar sorglegt (Forseti hringir.) ef þau færu forgörðum einfaldlega vegna þess að ríkissjóður hefur ekki séð sér fært að standa við lögbundin framlög til sóknargjalda. Ég held að það sé mjög mikilvægt að ríkið standi við sitt í þessu og það hefur ekki verið gert.