151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[18:48]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir ræðu sína. Ég hjó eftir því áðan að hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir spurði út í stefnu Miðflokksins í loftslagsmálum og uppskar svar um að því er mér heyrðist kolefnisskatt á Írlandi. Það var svona það næsta sem hann komst að því að svara til um stefnu Miðflokksins í þessum málefnum. En við sem höfum stundum hlustað á ræður samflokksmanna og hv. þingmanns um þessi mál höfum ekki komist hjá því að taka eftir því að það er gert lítið úr endurheimt votlendis, það er gert lítið úr Parísarsáttmálanum og það er geisað fram og til baka um þetta blessaða kolefnisgjald og því er fundið allt til foráttu. Maður fer því að velta því fyrir sér hvort hv. þingmaður telur þetta vera vanda, hvort hér sé einhver vá. Er losun koltvísýrings kannski æskileg að mati hv. þingmanns? Eða telur hann að losun koltvísýrings skipti engu máli og þetta séu allt saman tröllasögur og engin ástæða til að bregðast hér við? Ef hann telur að ástæða sé til að bregðast við, sem ég er alls ekki viss um vegna þess að ég hef ekki heyrt það í málflutningi hv. þingmanns að hann telji að svo sé, hvað sér hann fyrir sér að við getum gert?