151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[18:53]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Það er gott að heyra að hann telji að hér sé fyrst og fremst ástæða til að beita skynsemi og rökvísi og að fyrst og fremst þurfi aðgerðir að skila árangri en að hann efist í sjálfu sér ekki um það hvert markmiðið skuli vera. Við virðumst vera á sama stað um það hvað við álítum að beri að gera og að mínu mati er þá lærdómurinn sem við hljótum að draga af þessu sá að ekki sé nóg að gert. Það er ekki nóg og hröð uppbygging á þeim kostum sem þurfi að standa fólki og fyrirtækjum til boða, sérstaklega hvað varðar rafvædda kosti, uppbyggingin sé ekki nógu hröð og eins að kolefnisgjaldið sé ekki nógu hátt, þ.e. bíti ekki nægilega.(Forseti hringir.)

Ég er kominn fram yfir tímann en mig langaði engu að síður til að nota seinna andsvarið til að inna hv. þingmann eftir því hvort það sé hugsanlegt í sambandi við sóknargjaldið að það sé of íþyngjandi fyrir fátæka söfnuði að vera með dýrar og miklar sóknarkirkjur og hvort það sé kannski ástæða til þess (Forseti hringir.) að afhelga fleiri kirkjur til að létta af þeim kostnaði.