151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[18:55]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Af því að í fyrra andsvari held ég að hv. þingmaður hafi einmitt spurt hvað við í Miðflokknum vildum sjá að yrði gert í loftslagsmálum þá höfum við t.d. verið miklir talsmenn þess að auka skógrækt verulega. Ég tel persónulega að skógrækt og landgræðsla eigi að vera meginmarkmið okkar í baráttunni við loftslagsvandann vegna þess að árangurinn þar er svo augljós og hann er svo mikill. Þess vegna tel ég að það sé aðkallandi að hefja skógræktarátak og landgræðsluátak og setja í þann málaflokk þá peninga og það fjármagn sem til þarf.

Af því að einnig var minnst á votlendismálin þá er árangur af endurheimt votlendis á losun gróðurhúsalofttegunda óljós. Þess vegna er mikilvægt að ráðast í rannsóknir áður en forsvaranlegt er að gera slík áform að meginstoð í áætlun Íslands um bindingu gróðurhúsalofttegunda. (Forseti hringir.)

Við erum bara að nálgast þetta, hv. þingmaður, með skynsamlegum hætti og viljum sjá árangur, að farið sé í þær aðgerðir sem bera mestan árangur en ekki að skattleggja almenning, tekjulágt fólk með aðgerðum (Forseti hringir.) sem er ekki vitað hverju muni skila.

Ég sé að tíminn er liðin, herra forseti. Ég get ekki svarað þessu með kirkjurnar en ég er að sjálfsögðu algerlega mótfallinn því að afhelga kirkjur, hv. þingmaður. Hann ætti kannski að vita það.