151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[18:57]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (U):

Virðulegi forseti. Ég taldi áhugavert að skoða í þessu frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga, hvar það er sem fulltrúar meiri hlutans í efnahags- og viðskiptanefnd finna svigrúm til að auka útgjöld og hvar ekki. Það eru kannski helst tvö dæmi sem mig langar að nefna. Mig langar að skoða þau ekki bara í því frumvarpi sem liggur fyrir framan okkur í dag heldur tengja það líka sambærilegum ákvörðunum sem voru teknar fyrir ári.

Í fyrsta lagi eru það sóknargjöldin, sem efnahags- og viðskiptanefnd lagði til fyrir einu ári að hækka um 5% frá því sem ráðherra lagði til. Þá var efnahagsástandið aðeins farið að harðna, fall WOW og komið smá högg á búskap ríkisins en engu að síður lagði efnahags- og viðskiptanefnd til að sóknargjaldið færi úr 930 kr. í 975 kr. á hvert mannsbarn yfir 16 ára aldri. Nú er öldin önnur í efnahagsmálum, heldur betur búið að harðna á dalnum, mesti samdráttur í 100 ár eða hvað það er sem við erum komin upp í núna. Þá leggur meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar ekki til að hækka sóknargjöldin um 5%, eins og fyrir einu ári, heldur 10%. Nú skulum við fara úr 980 kr. upp í 1.080 kr. á hvert mannsbarn yfir 16 ára aldri. Heildarkostnaðurinn við þetta eru 280 millj. kr.

Mér finnst ekki alltaf til bóta að vera að bera saman hina og þessa útgjaldaliði til að sýna af hverju við eigum að gera þetta en ekki hitt, en ég stenst ekki freistinguna að benda á að þessi breytingartillaga meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar upp á 280 millj. kr. er á sömu síðu þar sem nefndin segist ekki geta lækkað virðisaukaskatt á tíðavörum líkt og lagt er til í umsögn sem nefndinni barst frá tveimur ungum konum. Virðisaukaskattur á tíðavörum var færður úr efra þrepinu niður í lægra þrep og það kostaði 40 milljónir. Væntanlega myndi það að afnema virðisaukaskattinn að fullu kosta eitthvað svipað. Hér á sömu síðu er ekki fundið svigrúm til að bæta 40 milljónum í það að lækka verð á mikilvægri nauðsynjavöru en það eru fundnar 280 milljónir til að hækka sóknargjöld um 10% á sögulegum lágpunkti í efnahagssögu landsins.

Hinn samanburðurinn sem mig langar að nefna varðar ívilnanir fyrir tengiltvinnbíla. Það gerðist á sama tíma í fyrra að fjármála- og efnahagsráðherra hafði þá lagt til að fella út ívilnun fyrir tengiltvinnbíla 31. desember 2020. Þessi ívilnun átti sem sagt að renna sitt skeið á enda, enda hafði hún þjónað sínum tilgangi og fjölgað tengiltvinnbílum sem virkuðu sem svona millibilstækni á meðan hreinir rafbílar voru ekki komnir á þann stað að þeir gætu þjónað orkuskiptunum að fullu. Þessa tillögu fjármálaráðherra féllst efnahags- og viðskiptanefnd fyrir einu ári ekki á og lagði til að framlengja ívilnun fyrir tengiltvinnbíla til ársloka 2022. Eitthvað hefur þetta nú kostað vegna þess að á þessu ári er búið að flytja inn 2.000 tengiltvinnbíla. Ívilnunin fyrir hvern og einn þeirra getur verið 960.000 kr. Til samanburðar er þakið á ívilnun fyrir rafhjól miðað við hjól sem kosta 400.000 kr., sem sagt heildarkostnaðurinn á dýrasta rafhjólinu sem ríkið er tilbúið að styðja við nær því ekki að vera helmingur af mestu ívilnuninni sem ríkið er tilbúið til að láta í tengiltvinnbíla, ári eftir að ráðherra lagði til, í samræmi við áætlun um orkuskipti, að hætta þeirri ívilnun. Núna leikur efnahags- og viðskiptanefnd sama leikinn. Meiri hlutinn leggur til að fresta lækkuninni á ívilnuninni, sem á að eiga sér stað á næsta ári. Núna um áramótin á samkvæmt bráðabirgðaákvæði í lögunum ívilnunin að fara úr 960.000 kr. á hvern bíl niður í 600.000. Meiri hlutinn leggur til að þessi upphæð haldist í 960.000 kr. allt næsta ár.

Í andsvörum við formann efnahags- og viðskiptanefndar spurði ég hvernig stæði á þessu vegna þess að það stendur ekki í nefndarálitinu hvaðan ábendingarnar um þessa breytingu koma. Þá nefndi hv. þingmaður helst Bílgreinasambandið sem, með fullri virðingu fyrir því, hefur ekki heildarsýn yfir orkuskipti í samgöngum eða áætlanir hins opinbera í þeim málum. Hv. þm. Óli Björn Kárason sagði þar að auki í andsvörum við mig að það væri engin leið að skjóta á kostnað við þessa breytingu sem meiri hluti nefndarinnar leggur til. En ég prófaði að gera smá rassvasaútreikning. Eins og ég sagði áðan er búið að flytja inn um 2.000 tengiltvinnbíla það sem af er þessu ári. Segjum að á næsta ári verði jafn margir bílar fluttir inn, 2.000 stykki, og það er hætt við að lækka úr 960.000 kr. í 600.000 þá ívilnun sem hver bíll geti fengið. Þar munar 360.000 kr. á hvern bíl. 2.000 bílar sinnum 360.000 kr. á hvern bíl að hámarki gerir nú bara 720 milljónir. Við erum nefnilega að tala um alvörufjárhæðir.

Hér er annar samanburður. Uppbygging hraðhleðslustöðva, innviðanna sem þarf til að knýja áfram orkuskiptin til þess að fólk sjái hreinorkubíla sem raunhæfan valkost, var árin 2019 og 2020 styrkt sérstaklega úr Orkusjóði um 227 milljónir. Þá myndi ég freistast til að spyrja: Hvort náum við meiri árangri í orkuskiptum með því að niðurgreiða tengiltvinnbíla aukalega um 720 milljónir eða með því að taka þann pening og þrefalda með því framlag til uppbyggingu hraðhleðslustöðva — þrefalda? Ég held að reikningsdæmið væri mjög einfalt.

Það sem þessi breytingartillaga meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar endurspeglar líka er að við erum enn þá með hagrænu hvatana í orkuskiptunum allt of mikið á ívilnanahliðinni. Við erum enn þá að einblína á gulræturnar en ekki prikin. Lítum til Noregs. Þar er löngu hætt að niðurgreiða tengiltvinnbíla. Þar er líka verið að skrúfa upp öll gjöld á bensínbílum til að hraða umskiptunum. Hér er ekki einu sinni byrjað að snerta á vörugjöldum bensínbíla.

Svo er annað sem meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar hefði mátt hafa í huga. Það er þróunin eða nýjar upplýsingar sem hafa komið fram um vistspor tengiltvinnbíla sem nefndinni er svo annt um að njóti ívilnana miklu lengur en ráðherrarnir leggja til að raunin sé. Annars vegar virðist vera mögulega nýtt „dísil“gate-mál í uppsiglingu. „Dísil“gate var eins og við munum þegar kom í ljós að bílaframleiðendur höfðu falsað útblásturstölur til að koma bensínbílum í lægri gjaldaflokka. Það er að koma í ljós að tengiltvinnbílar menga sennilega talsvert meira en uppgefnar tölur segja til um, sérstaklega þegar batterí í þeim tæmast og þeir fara að ganga eingöngu fyrir jarðefnaeldsneytinu. Þá verða þeir nefnilega, samkvæmt þessum tölum, frekar sótsvartir mengandi bílar. Þetta þyrfti meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar að skoða miklu betur áður en hann ákveður að opna kranann fyrir 720 millj. kr. eða hvað það gæti orðið í þágu bíla sem eru ekkert endilega jafn grænir og við viljum að þeir séu.

Hinar upplýsingarnar sem hafa komið fram á þessu síðasta ári frá því að efnahags- og viðskiptanefnd opnaði síðast peningakranann fyrir tengiltvinnbílum er könnun Samorku á raunnotkun Íslendinga á þessum bílum. Það kemur nefnilega í ljós þegar notkun fólks á tengiltvinnbílum er skoðuð að næstum þriðjungur ferða byrjar með tómt batterí. 29,1% ferða með tengiltvinnbíl byrja með hleðslu á batteríi innan við 10%. Þar með er hann dottinn nánast beint yfir í bensínið. Þetta eru ekki grænu umskiptin sem við eigum að vera að styrkja á þessum tímapunkti. Tengiltvinnbílar voru góðir fyrir sinn hatt sem brúartækni en núna eru þeir komnir á þann stað að þeir þurfa ekki þessar gríðarlegu ívilnanir sem meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar vill viðhalda.

Svo verð ég rétt að lokum að nefna að mér finnst — ég veit ekki hvert orðið á að vera — óvarlegt af meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar að eftirláta Bílgreinasambandinu að stýra stóru myndinni þegar kemur að því hvernig við mótum hagræna hvata utan um orkuskiptin. Það er bara einn pínulítill hluti af heildarmynd sem verður að ganga upp. Með því að hafa eyrun opin fyrir ábendingum Bílgreinasambandsins en ekki t.d. Landverndar, sem kemur í sama máli með góð rök fyrir því að hækka t.d. kolefnisgjöld, er meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar sem stendur að þessu áliti með fókusinn á kolvitlausum stað.

Grundvallaratriði varðandi framhald á þessum mikla stuðningi við tengiltvinnbílana, svo ég rétt kjarni það að lokum, er að meiri hlutinn þarf að opna augun fyrir því að framboð á alvöru hreinorkubílum sem ganga bara fyrir innlendum orkugjöfum er alltaf að batna. Það er búið að batna á síðasta ári og hefur stórbatnað á síðustu tveimur árum. Það á ekki að þurfa að ívilna bílum sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti þó aðeins að hluta til sé, þegar rafmagnsbílar eru komnir á þann stað sem þeir eru í dag. Peningurinn sem meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar leggur til í breytingartillögum sínum að renni til mengandi bíla væri miklu betur nýttur í að byggja upp innviði fyrir hreinorkubíla, sem er það sem við þurfum til að ná árangri í orkuskiptum.