151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[19:15]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (U) (andsvar):

Virðulegur forseti. Jú, mér finnst líkingin við nikótíntyggjó ágæt. Tengiltvinnbílar þjóna einmitt þeim tilgangi að koma samfélaginu yfir hjallann að vera háð ökutækjum sem eingöngu ganga fyrir jarðefnaeldsneyti, í gegnum bíla sem að hluta til ganga fyrir hreinni raforku, yfir í bíla, þangað sem við viljum stefna, sem ganga eingöngu fyrir hreinni orku. Vandinn er bara að við megum ekki tefja þetta meira. Efnahags- og viðskiptanefnd ákvað fyrir ári síðan að tefja þetta um tvö ár frá því sem ráðherra lagði til. Nú leggur meiri hluti nefndarinnar til að tefja þetta enn meira. Og árið 2022 eru sjö til átta ár í það að við eigum að standa skil á Parísarsamningnum, um árangur í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Bíll sem verður seldur undir ívilnananakerfinu í árslok 2022 verður enn þá á götunni þegar gildistíma Parísarsamningsins lýkur. Þannig að við erum að tala um þröngan tímaramma.

Þess vegna þykir mér miður að ákveðið hafi verið að lengja í þessari ívilnun fyrir ári, en algerlega ótækt að gera það aftur núna á grundvelli umsagnar frá Bílgreinasambandinu, sem er, bara svo við rifjum það upp, samtök bílainnflytjenda og bílasala, beinn hagsmunaaðili af því að viðhalda ákveðnu viðskiptamódeli. Staðreyndin er náttúrlega sú að fæstir framleiðendur eru komnir langt á veg í rafbílavæðingu framleiðslu sinnar. Þannig að ég myndi halda að innan Bílgreinasambandsins væru fjárhagslegir hagsmunir af því að auka sölu á nikótíntyggjóinu töluvert miklir umfram það að við hættum bara að reykja.