breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir yfirgripsmikla ræðu þar sem hann kom víða við. Ég vil sérstaklega taka undir það sem hann sagði í lokin, að vonandi veitum við þinginu, og ekki síst þingnefndum, tækifæri til þess að taka betur á tillögum ríkisstjórnarinnar. Þótt þær séu vel meintar þá eru þær ekki alveg í tengslum við raunveruleikann og við sjáum það oft. Við sjáum það m.a. á ábendingum frá litlum fyrirtækjum, litlum fjölskyldufyrirtækjum á landsbyggðinni sem hafa verið í ferðaþjónustu. Við sjáum einyrkja og lítil fyrirtæki hér á höfuðborgarsvæðinu kvarta undan því sama, að aðgerðir ríkisstjórnarinnar gagnvart þessum hópum séu ekki í tengslum við raunveruleikann. Það er eins og smáa letrið yfirtaki stóra letrið, stóru myndina, og mér finnst það slæmt.
Ég vil taka sérstaklega undir hvatningu hv. þingmanns um að þingið taki fyrir þessar tillögur sem geta orðið til þess að hjálpa þessum litlu fyrirtækjum. Hv. þingmaður kom inn á margt og sumu er ég í rauninni sammála en öðru er ég bara ógurlega mikið ósammála. Það er nú það skemmtilega við þingið að við getum verið hér og rætt ákveðna hluti málefnalega.
Mig langar aðeins að fá fram — því að mér finnst að ég hafi kannski misst af því, bara stutt, það er aukaatriði og aukaspurning — afstöðu Miðflokksins til hækkunar á áfengisgjaldi. Ég missti kannski bara af því hvort Miðflokkurinn tekur undir með okkur í Viðreisn um að bíða í ár með þá vísitöluhækkun sem boðuð er af hálfu ríkisstjórnarinnar, ekki síst vegna mikilla rekstrarerfiðleika í veitingabransanum.
Ég sé að tíminn fyrir fyrra andsvarið er liðinn. Ég mun koma að umhverfismálum í seinna andsvari mínu.