151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[20:07]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég held einmitt að þetta sé hluti af því sem tilheyrir því að vera í pólitík. Þegar maður er ráðherra er nei svar, alveg eins og já er svar. Þetta humm og ha og óskýrleiki er eitthvað sem skaðar ekki síst einyrkja, lítil fyrirtæki og meðalstór fyrirtæki í því ástandi sem nú er. Ég held að við getum sameiginlega hvatt ríkisstjórnina til að tala einfaldlega skýrar og taka svolítið mynduglega á nákvæmlega þeim vanda sem blasir við, ekki síst vegna ferðaþjónustunnar. Núna er í rauninni allt undir. Það er allt undir næstu vikur og mánuði og þá verðum við að vera með aðgerðir sem taka nákvæmlega á þeim gríðarlega vanda sem atvinnulífið stendur frammi fyrir. Það hefur um leið áhrif á heimilin.

Við erum mjög ósammála um umhverfismálin og það er náttúrlega ekki hægt að fara yfir það á einni mínútu. Það er stefna Viðreisnar og við sjáum það fyrir okkur að þeir borgi sem menga. Það er grunnprinsippið og síðan er hægt að taka tillit til ýmissa þátta. En það er grunnnálgunin. Við teljum að kolefnisgjaldið skipti mjög miklu máli. Ég skildi það sem hv. þingmaður sagði hér áðan — og við getum verið sammála um hvort gjaldið eigi að hækka eða ekki — þannig að hann sé ekki að tala um niðurfellingu á gjaldinu, að hann sé ekki að tala um að leggja af kolefnisgjaldið. Þess vegna langar mig til að spyrja hann: Í hvað sér hann kolefnisgjaldið fara? Sér hann það fara í aðgerðir sem tengjast loftslagsmálum og umhverfismálum, eins og t.d. endurheimt votlendis, skógrækt eða nýsköpun á sviði landbúnaðar sem tengist beint inn í umhverfisvernd og loftslagsmál? Mér þætti vænt um ef ég gæti fengið útskýringar á því í hvað hann sér kolefnisgjaldið fara.

Við erum hlynnt því að gjaldið verði hækkað með það að markmiði að undirstrika áherslur okkar í loftslagsmálum. Skuldbindingar okkar eru miklar. Við viljum virða alþjóðlegar skuldbindingar okkar sem við Íslendingar höfum undirgengist. Gott og vel, við erum kannski ekki að fara út í þá rökræðu hér en mig langar að vita (Forseti hringir.) hver stefna Miðflokksins er varðandi það hvert kolefnisgjaldið á að fara.