151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[20:09]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Það er rétt að við höfum ekki lagt til að kolefnisgjaldið verði allt fellt niður strax, illu heilli má kannski segja, en við viljum sýna þá hófsemd sem við erum þekkt fyrir og leggjum þess vegna til að það verði tekið í skrefum og skoðað. Þetta er nýr viðbótarskattur sem virðist vera lítið gagn í. Og í hvað ætti þetta að fara? Jú, það fer náttúrlega allt í ríkiskassann eins og fjárlögum er háttað nú til dags. Mér finnst hugmynd hv. þingmanns um að það fari í landgræðslu eða skógrækt mjög góð og ekki síður að það renni til landbúnaðar. Að styðja betur við íslenskan landbúnað er einmitt eitthvað það besta sem við getum gert í umhverfis- og loftslagsmálum. Ég er hins vegar alfarið á móti því að setja þetta í að moka ofan í skurði sem er mjög gölluð aðferð við að takast á við loftslagsmálin og felur að mínu mati í sér skemmdarverk. Á meðan þetta gjald er lagt á finnst mér eðlilegt að á sama tíma sé litið til þess að auka landgræðslu og skógrækt og styðja í auknum mæli við landbúnað þó að stuðningur við landbúnað eða skógrækt ætti auðvitað ekki að vera háður þessu gjaldi.

Ég veit að hv. þingmaður hefur ekki tækifæri til að koma aftur í andsvar svo að ég ætla ekki að gagnrýna stefnu hv. þingmanns eins og ég skil hana. En ég hef áhyggjur af þessum óljósu greiðslum í einhvers konar heimsloftslagssjóði sem enginn virðist geta útskýrt hvað verður um og maður óttast að renni einfaldlega í það að ýta undir framleiðslu í ríkjum þar sem hún fer fram með óumhverfisvænum hætti og draga úr henni á stöðum eins og á Íslandi þar sem við framleiðum vörur á nánast eins umhverfisvænan hátt og kostur er á í veröldinni nú til dags.