breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.
Forseti. Mig langar aðeins að koma inn á þetta magnaða kerfi sem hv. þingmaður fjallar svo vel um alltaf þegar hann kemur í ræðustól. Á fundi fjárlaganefndar í morgun var fólk frá félagsmálaráðuneytinu og fjallaði þar um hversu flókið kerfið væri og hversu mikil nauðsyn væri að breyta því. Það fjallaði líka um að það er fjármálaráðuneytið sem reiknar út allt vegna laganna en ekki félagsmálaráðuneytið sem ber ábyrgð á lögunum. Það er mjög áhugavert. Þau reikna ekki einu sinni út alla þessa flækju og hafa ekki aðgang eða forsendur til að reikna út áhrif breytinga á lögunum, sem gerir að verkum að þau hafa ekki hugmynd um hvaða áhrif hitt og þetta hefur. Við spurðum m.a.: Hvað þýða krónutöluhækkanir eins og í lífskjarasamningunum? Það er bara rosalega flókið því að á móti koma skerðingarnar út um allt. Maður situr bara eftir og spyr: Af hverju er ekkert lagað? Það er alveg gríðarlega merkileg spurning eins og hv. þingmaður fór yfir. Þá langar mig til að pæla aðeins í hvernig þetta ætti í raun og veru að vera á sem einfaldastan hátt. Erum við ekki að tala um að það vantar skilgreiningu á ákveðinni grunnframfærslu? Varðandi öryrkja erum við tala um miska, kostnað og grunnframfærslu. Þarf kerfið að vera eitthvað mikið flóknara en það?