151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[21:00]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Hv. þingmaður talaði hérna um sóknargjöldin sem mér finnst vera mjög áhugaverð leið til þess að standa undir rekstri lífsskoðunarfélaga og annarra. Í breytingartillögum meiri hlutans er lagt til að hækka sóknargjaldið enn meira en gert var ráð fyrir í frumvarpinu. Mig langaði til að pæla aðeins í því með hv. þingmanni hvort ekki væri farsælla þegar allt kæmi til alls, að leyfa félögunum sjálfum að innheimta sóknargjöldin og ákveða þá sjálf hversu hátt eða lágt gjaldið á að vera, alveg eins og var gert, t.d. við Bændasamtökin fyrir ekkert svo löngu síðan. Þau voru áður á fjárlögum en fengu síðan frelsi sjálf til að innheimta sín félagsgjöld. Þetta er leið til að frelsa lífsskoðunarfélög frá þessu yfirboði okkar hérna að ákveða þeirra félagsgjöld.

Það var komið aðeins inn á vandamál sókna, að þær væru illa fjármagnaðar o.s.frv., en þær eru líka með annað, þær eru með kirkjujarðasamkomulagið þar undir og laun þar ofan á, ólíkt öðrum lífsskoðunarfélögum. Það gerir málið, finnst mér, enn þá athyglisverðara, að þetta fyrirkomulag skuli enn þá vera svona. Mér finnst þetta mjög gamaldags fyrirkomulag og væri til í að pæla í því með hv. þingmanni hvort það væri hægt að hugsa einhverjar breytingar á því.