151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

virðisaukaskattur og fjársýsluskattur.

372. mál
[21:58]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og lögum um fjársýsluskatt. Frumvarpið er á þskj. 464 og er 372. mál þingsins. Markmið frumvarpsins eru fjölbreytileg en greint er frá meginefni þeirra í III. kafla frumvarpsins. Ég ætla að gera grein fyrir þeim helstu efnisatriðum sem frumvarpið hefur að geyma.

Lagt er til að í lögum um virðisaukaskatt verði kveðið skýrar á um gildandi undanþágu virðisaukaskatts vegna sölu fjármálaþjónustu og milligöngu um hana. Í því sambandi er lagt til að „vátryggingastarfsemi“, sem er einnig undanþegin virðisaukaskatti, verði felld undir hugtakið ,,fjármálaþjónusta“. Samhliða eru lagðar til afleiddar breytingar á lögum um fjársýsluskatt. Ákvæði laganna sem kveður á um undanþegna starfsemi fjármála- og verðbréfafyrirtækja hefur staðið óbreytt frá setningu laganna.   Á síðustu árum hafa miklar tæknibreytingar átt sér stað á sviði fjármálaþjónustu og tengdrar starfsemi, svo sem fjártækni. Í þessu ljósi er talið rétt að laga orðalag undanþáguákvæðisins að þeim breytingum sem átt hafa sér stað í alþjóðlegu umhverfi fjármálaþjónustu.

Markmið breytingarinnar er þannig að draga úr óvissu og auka skýrleika í skattframkvæmd. Í frumvarpinu eru nú lagðar til breytingar á undanþáguákvæðinu og í því sambandi höfð hliðsjón af sambærilegu ákvæði í norsku virðisaukaskattslögunum, þar sem kveðið er á um að sala á og milliganga um fjármálaþjónustu sé undanþegin skattskyldusviði laganna. Talið er rétt að líta til Noregs í þessum efnum þar sem Norðmenn eru í sömu stöðu og Íslendingar gagnvart Evrópusambandinu, þ.e. standa utan sambandsins en eru innan Evrópska efnahagssvæðisins. Töluverð framkvæmd hefur jafnframt mótast í Noregi um túlkun ákvæðisins síðustu ár, bæði hjá skattyfirvöldum og dómstólum, sem hægt er að líta til og hefur verið horft til við gerð frumvarpsins.

Þá er í frumvarpinu lögð til framlenging á bráðabirgðaákvæðum 33 og 34 í lögum um virðisaukaskatt, sem jafnan eru kennd við átakið Allir vinna, þar sem kveðið er á um tímabundna aukna endurgreiðslu virðisaukaskatts til byggjenda og eigenda vegna vinnu við byggingu, endurbætur eða viðhald íbúðarhúsnæðis o.fl. Með lögum nr. 25/2020, um breytingu á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru, var samþykkt að hækka endurgreiðsluhlutfall virðisaukaskatts vegna vinnu manna á byggingarstað úr 60% í 100% á tímabilinu frá 1. mars til og með 31. desember 2020. Samhliða hækkun endurgreiðsluhlutfallsins var samþykkt að endurgreiðsluheimildin næði einnig til þess virðisaukaskatts sem greiddur hefur verið vegna vinnu manna á byggingarstað frístundahúsnæðis, auk hönnunar eða eftirlits vegna nýbygginga, endurbóta eða viðhalds íbúðar- og frístundahúsnæðis.

Samhliða þessum breytingum var jafnframt samþykkt á sama tímabili að endurgreiða eigendum eða leigjendum íbúðarhúsnæðis 100% þess virðisaukaskatts sem greiddur hefði verið af vinnu vegna heimilisaðstoðar eða reglulegrar umhirðu íbúðarhúsnæðis auk þess að heimila 100% endurgreiðslu virðisaukaskatts til einstaklinga utan rekstrar sem greiddur hefði verið af vinnu manna sem unnin væri vegna bílaviðgerða, bílamálningar eða bílaréttingar fólksbifreiða.

Með lögum nr. 37/2020, um breytingu á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru, var jafnframt ákveðið að heimild til 100% endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu skyldi einnig ná yfir annað húsnæði sem alfarið væri í eigu sveitarfélaga eða stofnana og félaga sem alfarið væru í eigu þeirra. Þá var sú heimild einnig lögfest að tiltekin almannaheillafélög, til að mynda mannúðar- og líknarfélög, íþróttafélög, björgunarsveitir og fleiri félagasamtök, ættu rétt á 100% endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu á tímabilinu 1. mars til og með 31. desember 2020 á byggingarstað við byggingu, viðhald eða endurbætur á mannvirkjum, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Ákvæðið var útvíkkað til tiltekinna almannaheillafélaga með lögum nr. 73/2020, um breytingu á lögum um virðisaukaskatt.

Fyrir liggur að heimildir tilvitnaðra ákvæða til bráðabirgða renna að öllu óbreyttu út í lok þessa mánaðar, og um leið í lok þessa árs. Talið er að á árinu 2021 muni þó áfram eiga við þau rök sem færð voru fyrir auknum endurgreiðsluheimildum bráðabirgðaákvæðanna. Í kjölfar hinna alvarlegu en þó tímabundnu áhrifa heimsfaraldurs kórónuveiru á samfélagið er lagt til að gildistími þeirra verði framlengdur í eitt ár, þ.e. til og með 31. desember 2021.  

Jafnframt er lögð til breyting á lögum um virðisaukaskatt, þar sem lögð er til lækkun á heimilaðri skráðri hámarkslosun tengiltvinnbifreiða sem falla nú undir bráðabirgðaákvæði 24 í lögunum, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Með slíkri lækkun skapast hvati hjá innflutnings- og söluaðilum tengiltvinnbifreiða til innflutnings og sölu á umhverfisvænni tengiltvinnbifreiðum sem styður við aðgerðaráætlun stjórnvalda í loftlagsmálum sem miðar að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda til ársins 2030. Breytingin hefur þannig jákvæð áhrif á þær aðgerðir sem finna má í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftlagsmálum sem miða að samdrætti í losun. Fyrir liggur að mikil þróun hefur átt sér stað síðustu ár í tækni tengiltvinnbifreiða. Í því sambandi má nefna að drægni tengiltvinnbifreiða á hreinu rafmagni hefur aukist til muna síðustu misseri sem leitt hefur til minni losunar á koltvísýringi. Í ljósi þessa er nú talið rétt að gerðar verði breytingar á heimilaðri hámarkslosun. Ekki er gert ráð fyrir því að breytingin leiði til teljandi fækkunar tengiltvinnbifreiða sem falla undir ívilnun samkvæmt ákvæðinu, en þó munu einhverjar tengiltvinnbifreiðar sem losa umfram ný mörk falla utan ívilnunar vegna breytingarinnar.

  Þá er talin nauðsyn á að lögfesta á ný ákvæði til bráðabirgða 29 í lögum um virðisaukaskatt þess efnis að heimilt verði að fella niður virðisaukaskatt við innflutning á lyfjum sem gefin eru ríkinu eða stofnunum þess til nota við meðferð sjúklinga á heilbrigðisstofnunum. Með lögfestingu ákvæðisins nú mun verða heimilt að fella niður virðisaukaskatt við innflutning til nota við klínískar rannsóknir hér á landi frá og með 1. janúar 2021 til og með 31. desember 2023 en nú liggja fyrir áform um að Landspítalinn taki þátt í klínískri meðferðarrannsókn á bráðaeitilfrumuhvítblæði í börnum sem mun falla undir ákvæðið. Þá liggur fyrir að með breytingunni verður jafnframt heimilt að fella niður virðisaukaskatt með sama hætti vegna innflutnings á öðrum lyfjum, til að mynda vegna Covid-19 faraldursins sem gefin eru ríkinu eða stofnunum þess til nota við meðferð sjúklinga á heilbrigðisstofnunum.

Í frumvarpinu er enn fremur lagt til að hafi virðisaukaskattsskýrslu verið skilað á tilskildum tíma verði heimilt að endurgreiða skattaðila inneign virðisaukaskatts þó að innsend skýrsla vegna fyrra uppgjörstímabils sé óafgreidd. Slík endurgreiðsla verði þó áfram óheimil ef álagning á fyrri uppgjörstímabilum byggist á áætlun ríkisskattstjóra. Það er sem sagt heimilt, samkvæmt ákvæðinu, að endurgreiða inneign virðisaukaskatts þó að innsend skýrsla vegna fyrra uppgjörstímabils sé óafgreidd, nema álagning á fyrri uppgjörstímabilum byggist á áætlun ríkisskattstjóra.

Að lokum er lögð til lögfesting á nýju ákvæði til bráðabirgða í lögum um virðisaukaskatt þar sem heimilað verður að víkja frá almennum uppgjörsreglum laganna á tímabilinu 1. mars. 2020 til og með 31. desember 2021, þ.e. falla frá eða fresta innheimtu og skilum á virðisaukaskatti, vegna sölu skattskyldrar þjónustu sem innt er af hendi á grundvelli skriflegra samninga til a.m.k. tveggja ára um fasteignaleigu og a.m.k. sex mánaða um aðstöðuleigu og leigu lausafjármuna, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.

Ábendingar eru um að margir leigutakar, til að mynda aðilar í ferðaþjónustu, sem gert hafa leigusamninga til lengri tíma, hafi ekki getað greitt umsamið leigugjald sökum tekjufalls af völdum efnahagsástands sem skapast hefur af völdum heimsfaraldurs kórónuveiru. Á þetta einkum við um leigu atvinnuhúsnæðis, þar sem virðisaukaskattur er lagður á leigugjald.

Þrátt fyrir að leigugjald fáist ekki greitt eða greiðslu þess sé frestað ber leigusölum engu að síður að standa skil á virðisaukaskatti af umsömdu leigugjaldi á gjalddaga hvers tímabils þar sem þeir teljast afhenda þjónustu í formi útleigu frá mánuði til mánaðar samkvæmt svokallaðri afhendingarreglu virðisaukaskattslaga.  

Í kjölfar þess mikla samdráttar sem hefur orðið í hinum ýmsu atvinnugreinum hafa stjórnvöld brugðist við með ýmsum aðgerðum. Tillagan er af sambærilegu tilefni og er ætlað að bregðast sérstaklega við tekjufalli leigutaka, eins og hér hefur komið fram, sem eru bundnir af samningum til lengri tíma.

Virðulegur forseti. Tillögur frumvarpsins eru taldar hafa neikvæð áhrif á skatttekjur ríkissjóðs sem nemur alls 9 milljörðum kr.

Þar af er ráð fyrir því að áformaðar breytingar er varða undanþágu fjármálaþjónustu hafi nær engin áhrif á ríkissjóð í fjárhagslegu tilliti en leiði fyrst og fremst til aukins skýrleika. Tillaga um framlengingu á Allir vinna út næsta ár er talin hafa neikvæð fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð sem gætu numið 9 milljörðum kr. Nánast öll fjárhagsleg áhrif frumvarpsins liggja í þessu ákvæði. Hér ber að athuga að jafnvel þó að framkvæmdirnar sem falla undir ákvæðið þurfi að hafa átt sér stað á árinu 2021 er hægt að sækja um sjálfa endurgreiðsluna í heil sex ár og þess vegna verður að gera ráð fyrir að tekjutap ríkisins á grundvelli þessa ákvæðis dreifist yfir lengri tíma

Tillaga um að lækka heimilað hámark skráðrar losunar tengiltvinnbifreiða er aðallega til þess fallin að stuðla að framgangi markmiða stjórnvalda í loftslagsmálum, eins og ég hef hér rakið, og varðandi innflutning á lyfjum er ekki talið að það ákvæði hafi mikil áhrif á tekjur ríkissjóðs.

Varðandi endurgreiðslu skattaðila af inneign á grundvelli virðisaukaskattsskýrslu er aðallega gert ráð fyrir að það geti haft jákvæð fjárhagsleg áhrif fyrir ríkissjóð. Það dragi verulega úr líkum á að greiða þurfi dráttarvexti úr ríkissjóði, dragist endurgreiðsla á grundvelli slíkrar skýrslu fram yfir lögbundinn afgreiðslufrest. Þetta er ívilnandi fyrir skattaðila og hefur þannig góð áhrif í öllu tilliti.

Ekki er gert ráð fyrir því að tillaga frumvarpsins er varðar tímabundna niðurfellingu eða frestun á innheimtu og skilum á virðisaukaskatti vegna sölu skattskyldrar þjónustu í formi fasteignaleigu, aðstöðuleigu og leigu lausafjármuna hafi teljandi fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð í ljósi þess að í flestum tilvikum er um að ræða aðila sem hafa heimild til að færa virðisaukaskattinn af leigugjaldinu til innskatts.

Ég tel að ég hafi farið ágætlega yfir öll helstu efnisatriði þessa máls og rökin fyrir þeim. Ég legg til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar að lokinni þessari umræðu og svo til 2. umr. hér í þinginu.