151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

virðisaukaskattur og fjársýsluskattur.

372. mál
[22:12]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (U) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra út í 4. gr. frumvarpsins sem snýst um að breyta viðmiðunarmörkum losunar tengiltvinnbíla sem falla undir XXIV. ákvæði til bráðabirgða í lögum um virðisaukaskatt. Þetta ákvæði gekk gegn frumvarpi sem ráðherra lagði fram hér fyrir ári. Þá lagði hæstv. ráðherra til að ívilnanir vegna tengiltvinnbíla féllu niður frá og með áramótunum sem nú eru að ganga í garð með eftirfarandi orðum:

„Af þessu öllu leiðir að ekki er talin þörf á slíkum ívilnunum fyrir tengiltvinnbifreiðar lengur en til loka árs 2020.“

Þessu bráðabirgðaákvæði var komið inn á harðahlaupum á síðasta þingdegi fyrir jól fyrir ári, úr hv. efnahags- og viðskiptanefnd en formaður hennar lagði fram breytingartillögu 16. desember sem gekk þvert á það sem ráðherra hafði sagt um að ívilnanir í þágu tengiltvinnbíla hefðu einfaldlega skilað þeim árangri sem þyrfti. Þess vegna velti ég fyrir mér hvort ráðuneytið hafi, þegar það vann þessa tillögu sem er í 4. gr., lagt mat á áhrif þessa bráðabirgðaákvæðis og hvort hæstv. ráðherra geti, frá því að hann lagði fram frumvarp um stuðning til vistvænna ökutækja fyrir ári, staðið við þau rök áfram eða hvort eitthvað hafi breyst til að réttlæta það að þetta bráðabirgðaákvæði hangi í lögum um virðisaukaskatt.