151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

virðisaukaskattur og fjársýsluskattur.

372. mál
[22:16]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (U) (andsvar):

Herra forseti. Málið með hraðabreytingar er að þær ná náttúrlega til rafmagnsbíla líka. Staðan er orðin sú að tengiltvinnbíla þarf miklu síður núna en þá þurfti í fyrra, hvað þá hittiðfyrra, til að brúa bilið á milli bíla sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti og hreinorkubíla. Ég er algjörlega sammála því að þrengja skilyrðin fyrir því að tengiltvinnbílar geti fengið ívilnun, eins og ráðherrann leggur til hér. En ég myndi vilja sjá það skoðað ofan í kjölinn í umfjöllun nefndarinnar vegna þess að jú, þetta eru huglægir mælikvarðar upp að einhverju marki en það er hægt að meta loftslags- og umhverfisáhrif af svona ákvörðunum. Það er náttúrlega eitthvað sem ætti að gera þegar kemur að ívilnunum í þágu ökutækja.

En fyrst við erum að tala um þetta tiltekna bráðabirgðaákvæði í lögum um virðisaukaskatt langar mig að spyrja ráðherrann um breytingartillögu sem kemur frá efnahags- og viðskiptanefnd við bandorminn sem við ræddum hér fyrr í dag þar sem nefndin leggur til að fresta því að ívilnun fyrir tengiltvinnbíla lækki á næsta ári. Það hefur í för með sér 360.000 kr. búbót fyrir hvern kaupanda slíks bíls ef allir fullnýta sér það. Og ef salan á þessum bílum verður eitthvað svipuð og á þessu ári þá erum við að tala um hundruð milljóna. Fluttir hafa verið inn 2.000 tengiltvinnbílar það sem af er þessu ári. 2.000 sinnum 360.000 á hvern einasta bíl væru 720 milljónir. Þykir hæstv. ráðherra þetta vera besta ráðstöfun á fé í þágu orkuskipta?