151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum um skatta og gjöld .

342. mál
[23:23]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Hæstv. fjármálaráðherra mælir fyrir prýðisgóðu máli, mjög góðu máli sem á sér langan aðdraganda eins og hæstv. ráðherra nefndi. Ástæða er til að þakka þeim sem hafa tekið þátt í þeirri vinnu, mönnum eins og hv. þm. Willum Þór Þórssyni og auðvitað miklu fleirum. Það er mjög jákvætt skref að þetta sé hér fram komið.

En ég spyr hæstv. ráðherra: Hvernig sér hann fyrir sér að það verði skilgreint hvaða félög teljist til almannaheilla? Hæstv. ráðherra nefndi að þetta yrði skilgreint betur síðar. Nú er mjög mismunandi hvað fólk telur vera til almannaheilla og hvað ekki, ég tala nú ekki um á þessum ímyndarstjórnmálatímum. Er hætta á að samtök sem eru í rauninni í pólitískri baráttu falli þarna undir? Tökum dæmi: Mikið er rætt um umhverfismálin og hæstv. ráðherra nefndi raunar landgræðslu og skógrækt. Ég held að allir hljóti að geta verið sammála um að landgræðsla og skógrækt sé æskileg en það eru ekki allir sammála um að æskilegt sé að moka ofan í skurði, geta jafnvel talið það til óþurftar og miklu betra að gróðursetja í það land. Annað dæmi: Myndu samtök, gefum þeim nafn og segjum að þau heiti Ráðdeild, sem berðust fyrir því að vel væri farið með ríkisfé sitja við sama borð og samtök sem væru að berjast fyrir auknum útgjöldum á einhverju sviði? Eða samtök sem væru að berjast fyrir fólk sem fer leiðar sinnar á sínum fjölskyldubíl, væru að tryggja öryggi þess og að það komist leiðar sinnar, væru þau með sama rétt og samtök sem í nafni umhverfisverndar væru að berjast gegn umferð fjölskyldubílsins?