151. löggjafarþing — 30. fundur,  3. des. 2020.

félagsleg aðstoð og almannatryggingar .

361. mál
[00:10]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta og tek undir að það muni skipta máli, nái hin breytingin fram að ganga sem lögð er hér til, ekki sú sem lýtur að 50.000 kr. eingreiðslu heldur varanleg breyting frá og með næsta ári sem snýst um með hvaða hætti við ráðstöfum 1,1 milljarði kr. Það mun skipta máli fyrir þann hóp örorkulífeyrisþega og endurhæfingarlífeyrisþega sem er á strípuðum bótum að fá þessa hækkun sem verður umfram 3,6% hækkunina.

Varðandi eldri borgara er auðvitað hefðbundin desemberuppbót væntanleg. En það sem við erum að gera hér er að við erum í rauninni að ráðstafa fjármagni sem ætlað var til örorkulífeyrisþega til að koma til móts við þá og gera í rauninni það sama og gert var á sínum tíma þegar kerfið var endurskoðað gagnvart eldri borgurum. Þetta er fjármagn sem hefur legið inni, eins og ég rakti, og við erum í rauninni að ráðstafa því fjármagni, það verður varanlegt á næsta ári en með eingreiðslu núna í desember. Það er ekki væntanlegt annað frumvarp frá mér eða mínu ráðuneyti hvað varðar breytingar á almannatryggingalögum sem lýtur að eldri borgurum, ekki núna fyrir áramótin, nei. En hins vegar eru ýmsar aðgerðir sem munu koma inn við 2. umr. fjárlaga og lúta sérstaklega að eldri borgurum og kynntar voru sem hluti af viðspyrnupakka ríkisstjórnarinnar og lúta að ýmsum félagslegum aðgerðum og öðru slíku þegar kemur að eldri borgurum.