151. löggjafarþing — 30. fundur,  3. des. 2020.

félagsleg aðstoð og almannatryggingar .

361. mál
[00:12]
Horfa

Sara Elísa Þórðardóttir (P):

Forseti. Ég vil leggja áherslu á það, eins og hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson sem og hæstv. ráðherra, hversu mikilvægt það er að þessi eingreiðsla sem við ræðum hér verði greidd út sem fyrst. Sé ferill málsins skoðaður sést að henni var fyrst lofað fyrir 18. desember en frumvarpið segir núna 31. desember. Ef marka má orð hæstv. ráðherra lítur allt út fyrir að þetta verði fyrir 18. desember. Ég vil bara leggja áherslu á hversu mikilvægt það er.

Eins finnst mér rétt að benda á að eingreiðslan sem um ræðir og fyrirhuguð breyting eftir áramót hefur víðs vegar í umræðunni verið sett fram sem Covid-viðspyrnuaðgerð er það í rauninni ekki. Það er ekki verið að bæta við peningum í þetta málefnasvið, inn í málefnaflokk öryrkja og fatlaðs fólks, vegna Covid heldur er hið rétta að fjármagninu var úthlutað í fjárlögum fyrir þetta ár með fjárlagafrumvarpinu í fyrra. Þetta er því ekki nýtt fé, það átti bara eftir að ráðstafa því.

Ég legg aftur áherslu á mikilvægi þess að þetta fari hratt og vel í gegnum þingið. Það er gríðarlegt ákall eftir því, eins og kom fram í máli hv. þm. Guðmundar Inga Kristinssonar og eins hæstv. ráðherra. Það er gríðarlegt ákall eftir þessu. Það er líka bara gott að undirstrika að með eingreiðslunni er ekki um að ræða háa fjárhæð. En vert er að hafa í huga og setja það svolítið í samhengi hversu miklu máli hún skiptir fyrir þennan hóp. Þetta getur breytt öllu. Það eru að koma hátíðir og það eru að koma jól. Höfum það bara í huga. Þetta er ekki há upphæð. Hv. velferðarnefnd er meðvituð um mikilvægi þess og ég vænti þess að þetta fari hratt og vel í gegnum þingið.