störf þingsins.
Virðulegi forseti. Þrátt fyrir stöðuna í samfélaginu er mikilvægt að framþróun atvinnulífsins stöðvist ekki og fjárfesting í atvinnuþróun haldi áfram. Samfélagið þarf á fjölgun starfa og auknum gjaldeyristekjum að halda. Aðstæður kalla á að stjórnvöld fari í aðgerðir sem hvetja til arðbærra fjárfestinga. Þá er ég að tala um viðbót við það sem þegar hefur verið gert í stuðningi við rannsóknir og nýsköpun og til að viðhalda fyrirtækjum. Með öðrum orðum er ég að tala um nýjar aðgerðir sem koma í veg fyrir stöðnun og skapa nýjar gjaldeyristekjur og störf hratt.
Ég hef því í samvinnu við aðra þingmenn Framsóknarflokksins lagt fram tillögu um ríkisábyrgð á viðspyrnulánum til atvinnuþróunar. Tillagan gengur út á að veita allt að 200 millj. kr. ábyrgð á lánum til fjölbreyttra atvinnuþróunarverkefna hjá ólíkum aðilum þar sem ríkisábyrgð yrði veitt fyrir allt að 70% lánsfjárhæðar. Til að aðgerðin hefði marktæk áhrif við að örva útlán til atvinnusköpunar þyrfti heildarupphæð lána sem njóta ríkisábyrgðar að nema að lágmarki 10–15 milljörðum kr.
Þetta mál er númer 31 í röðinni inn í þingið og er 33. mál þingfundar dagsins. Ekki er alveg víst að við náum þangað í dag. Tillögunni er ætlað að bregðast við vísbendingum um að niðursveiflan í hagkerfinu magnist vegna þess að fyrirtæki hafi ekki aðgang að lánsfjármagni fyrir góð og arðbær verkefni, verkefni sem lánveitendur teldu vænlegan fjárfestingarkost í hefðbundnu árferði en gjalda nú fyrir óvissuna. Hvatinn sem felst í ríkisábyrgðum ætti að geta nýst fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum þó að verkefnin væru flest lítil og meðalstór. Dugnaður, þekking og þor er til staðar í samfélaginu (Forseti hringir.) en við þurfum að tryggja fjármagn til atvinnuuppbyggingar.