störf þingsins.
Virðulegur forseti. Er öryrkjum að fjölga og eru þeir svikarar upp til hópa? Raunar hefur heildarfjöldi örorkulífeyrisþega svo gott sem staðið í stað á milli áranna 2017 og 2019. Þannig má segja að breytingar milli áranna 2008 og 2019 gefi ekki rétta mynd af stöðu mála í dag og breytingar frá aldamótum enn síður. Örorkulífeyrisþegum hefur fjölgað lítið sem ekkert frá 2017 miðað við þær upplýsingar sem liggja fyrir í dag.
Eins fram kom hér að ofan hefur fjöldi örorkulífeyrisþega staðið í stað frá 2017, en íbúum landsins og fólki á vinnumarkaði hefur haldið áfram að fjölga. Fyrir vikið lækkaði hlutfall örorkulífeyrisþega úr 8,2% árið 2017 í 7,8% 2019, en á milli áranna 2017 og 2019 hefur hlutfallið lækkað um 0,4%. Þetta kemur fram í skýrslu Kolbeins Stefánssonar, doktors í félagsfræði.
Að tala um stórfelld svik í örorkukerfinu er fáránlegt. Auðvitað eru svikarar þar eins og annars staðar, en könnun sem gerð var fyrir nokkrum árum og átti að sýna stórfelld svik í almannatryggingakerfinu, sýndi bara smásvik, og þá nær eingöngu hjá hjónum sem skildu á pappírum en ekki raunverulega. Ég hef áður sagt það og endurtek það hér að þeir fáu sem reyna að svindla sér inn í þetta ömurlega, bútasaumaða, ófétisöryggiskerfi almannatrygginga eru alvarlega veikir og eiga því fullkominn og óskoraðan rétt á því að vera þar. Tökum á öllum svikum, sama hvernig þeir svikarar eru, en byrjum á réttum stað og réttum enda og finnum fyrst þá sem svíkja út hæstu upphæðirnar; skattsvikarana sem svíkja hundruð milljóna króna með skattsvikum, hundruð milljóna sem duga vel fyrir öllum greiðslum öryrkja og talsvert meira til.