151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

störf þingsins.

[11:46]
Horfa

Sara Elísa Þórðardóttir (P):

Herra forseti. Tíminn er takmörkuð auðlind og tími til aðgerða gegn loftslagsbreytingum er á þrotum. Lausnin á þeim hamförum er ekki eins einföld og bólusetning við veiru og jafnvel þótt sumir reyni að bólusetja gegn sannleikanum í þessum efnum eru vísindin ótvíræð og afgerandi gagnvart því að loftslag jarðarinnar er að taka skjótum og alvarlegum breytingum. Það krefst fullrar athygli okkar allra strax. Losun gróðurhúsalofttegunda er enn langt yfir ásættanlegum mörkum. Sjórinn súrnar, jöklar hopa og afleiðingarnar eru þær að vistkerfunum okkar stafar slík ógn af að sjálfur lífvænleiki jarðarinnar er í bráðri og aðkallandi hættu. Okkur ber siðferðisleg skylda til að bregðast við strax og af alvöru og þunga. Við megum ekki missa þetta úr höndunum, það væri óhugsandi.

Loftslagsverkföll ungs fólks voru áberandi á síðasta ári og þó að heimsfaraldur hafi átt hug okkar allra að undanförnu þá megum við ekki gleyma kröfum unga fólksins. Lýsum yfir neyðarástandi í loftslagsmálum strax. Skammt er síðan Nýsjálendingar stigu það skref og við eigum að gera það líka. Tryggjum alvöruaðgerðir þannig að við Íslendingar getum staðið við skuldbindingar okkar svo að meðalhlýnun jarðar haldist innan við 1,5°C. Leggjum fram aðgerðir út frá heildarlosun. Núverandi aðgerðaáætlun stjórnvalda boðar aðeins 8% samdrátt í heildarlosun. Hins vegar verður að tryggja að 50% samdráttur náist í heildarlosun fyrir árið 2030 og kolefnishlutleysi fyrir árið 2040.

Að lokum, herra forseti, vil ég hvetja hæstv. forsætisráðherra í samvinnu við hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra til að skipa hið fyrsta loftslagsþríeyki. Tíminn er takmörkuð auðlind og þegar kemur að loftslagsmálum er tíminn nærri á þrotum.