151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

störf þingsins.

[11:49]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Formaður Dómarafélags Íslands fjallaði í fjölmiðlum í gær um niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu. Þar sagði hann vandann vera þann að stjórnvöld beiti einhverjum bolabrögðum til að koma sínu fólki að. Þrír af þeim dómurum sem Landsréttarmálið snýst um hafa verið endurskipaðir. Þeir stóðu upp úr dómarasæti sínu og settust í næsta sæti. Ímyndið ykkur hvernig það myndi líta út í dómsal. Sá sem kemur fyrir dómara í leit að réttlæti og sanngirni klórar sér aðeins í hausnum og spyr: Afsakið, er nokkur hætta á því að dómarinn sé mér óvilhallur? Dómarinn svarar: Já, afsakið. Og hann stendur upp og sest í stólinn hliðina: Núna er þetta allt í lagi, það var bara vandamál þegar ég sat í hinum stólnum.

Eigum við ekki rétt á dómurum og dómstólum sem við getum treyst að komi vel fram við borgara landsins og á réttlátan og sanngjarnan hátt? Hversu vel treystir þú dómurum sem þú veist að komust í dómarasæti með pólitískum bolabrögðum? Hversu vel treystir þú dómurum sem sitja í bláum sætum? Hvernig er dómgreind þeirra dómara sem sitja í þessum blámáluðu sætum og vita að allt sem þau gera litast af málningunni á stólnum þeirra, sama hversu heiðarlega þau rækja störf sín. Hvítþvottur eins og stólaskipti gengur ekki upp. Blái gljáinn mun alltaf skína í gegn því að bláminn fylgir dómurum og skipunum þeirra en ekki sætunum. Það sér hver sem vill sjá það. Það er því ekki nema eitt hægt að gera og það er augljóst, það hefur verið augljóst frá upphafi. Það sem þarf að gerast er að dómararnir þurfa að víkja. Það er ekki flóknara en það. Hitt sem þarf að gera er að koma í veg fyrir að flokkurinn, sem hefur alltaf beitt bolabrögðum þegar þess þarf til að hann komi sínu fólki að, fái að koma nálægt völdum. Misnotkun á valdi og bolabrögð hafa verið einkenni Sjálfstæðisflokksins í langan tíma. Hættum meðvirkni með misnotkun á valdi.