störf þingsins.
Virðulegur forseti. Sú ræða sem flutt var hér gæti kallað á mun lengri ræðu, en ég ætla að ræða allt annað mál, hv. þingmaður. Ég ætla að ræða um sóknargjöldin og þá áhugaverðu staðreynd að ég fékk tölvupóst í gær þar sem ég var hvött til þess að fella tillögu sjálfrar mín og meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar um að hækka sóknargjöldin — eða ættum við kannski öllu heldur að segja leiðréttingu á sóknargjöldunum? Ég held að það sé tímabært að við þorum að taka þá umræðu í þessum sal hversu miklu máli kirkjan og önnur trúar- og lífsskoðunarfélög skipta fyrir samfélagið. Þau gegna veigamiklu hlutverki í samfélagi okkar og á tímum sem þessum er vissulega þörf á því.
Það er áhugavert að skoða rannsóknir um langlífi fólks og ég hygg að margir hér inni hafi fylgst með þáttum eða lesið bækur um bláu svæðin svokölluðu, þar sem rannsökuð hafa verið þau svæði á jarðarkúlunni þar sem fólk lifir hvað lengst og hvað það er sem þetta fólk á sameiginlegt. Það eru níu atriði og þau hafa mikið með almenna heilsu og vellíðan að gera, hóflega og reglulega hreyfingu, mataræði og annað þess háttar. En það hefur líka með það að gera að fólk sameinast í trú á einhvern æðri mátt. Það getur verið mismunandi á hvað fólk trúir eða hvaða lífsskoðunarfélög fólk aðhyllist, en það skiptir einfaldlega máli fyrir lífsgæði og fyrir lengd lífs að við sameinumst um eitthvað slíkt.
Ég held að það sé tímabært í þessum sal að við hættum að tala niður kirkjuna. Hún gegnir nefnilega veigamiklu og mikilvægu hlutverki fyrir samfélagið allt.