151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

störf þingsins.

[11:53]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Herra forseti. Þegar rætt er um dómsniðurstöður sem varða dómaraval árið 2017 þegar Landsréttur var skipaður í fyrsta sinn er mikilvægt að hafa í huga hver hinn raunverulegi lögfræðilegi ágreiningur er í málinu, grunnlögfræðilegi ágreiningurinn. Hann snýst um atriði sem varðar það hvort þáverandi dómsmálaráðherra hafi fullnægt rannsóknarskyldu með nægilega skýrum hætti þegar hún ákvað að gera tillögu um dómara sem byggðist á því að dómarareynslu var gefið meira vægi en öðrum þáttum sem hæfnisnefnd hafði byggt á. Þetta var hinn lögfræðilegi ágreiningur. Það skulum við hafa í huga þegar við hlustum á stóryrði einstakra þingmanna eins og hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar um þessi efni. Það skulum við hafa í huga þegar menn reyna að blása þetta út eins og hér á Íslandi hafi verið framin stórkostleg mannréttindabrot af því að maður sem hafði játað á sig tiltekið brot var dæmdur af dómara sem hafði verið metinn hæfur af matsnefnd, og metinn hæfari af hálfu dómsmálaráðherra en einhverjir aðrir. Við skulum setja hlutina aðeins í samhengi hvað það varðar.

Hitt er svo annað mál að auðvitað verður íslenska ríkið að efna samningsskuldbindingar sínar samkvæmt mannréttindasáttmálanum og greiða viðkomandi þann kostnað sem kveðið er á um í dómsorði í niðurstöðu yfirdeildar Mannréttindadómstólsins. En auðvitað verðum við síðan í framhaldinu að velta fyrir okkur og ræða hvernig við viljum haga dómaraskipan til framtíðar. Ég er ekki viss um að við séum komin til botns í þeirri umræðu.