151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

störf þingsins.

[11:55]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf):

Herra forseti. Í dag er alþjóðlegur dagur fatlaðs fólks. Í morgun birtust ansi merkilegar heilsíðuauglýsingar í blöðum landsins frá Öryrkjabandalagi Íslands. Í þeim birtist ákall til ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur um að virða skýran vilja Alþingis um lögfestingu samningsins um réttindi fatlaðs fólks. Eftir tíu daga átti ríkisstjórnin nefnilega að vera búin að leggja fram frumvarp þess efnis. Það mun ekki gerast. Ekkert svona mál er á dagskrá ríkisstjórnarinnar. Þingmál, sem ég lagði fram þar sem kveðið er á um slíkt frumvarp, samþykkti þingið fyrir 18 mánuðum. Ég er búinn að ýta á málið hér í þingsal. Ég er búinn að beina fyrirspurn til forsætisráðherra hér í þingsalnum. Ég er búinn að birta opið bréf til forsætisráðherrans. Og núna neyðist Öryrkjabandalagið til að birta heilsíðuauglýsingar um að ríkisstjórninni beri að virða löggjafarviljann.

Hvað er eiginlega í gangi? Veit þjóðin hvað er að gerast? Vita fjölmiðlar það? Þetta er nefnilega stórmál. Við samþykktum hér öll saman, úr öllum flokkum, mál sem myndi stórbæta réttarstöðu fatlaðs fólks. Og ríkisstjórninni var falið hið skýra hlutverk að leggja fram frumvarp innan ákveðins tímaramma.

Herra forseti. Af hverju er verið að svíkja þetta mál af öllum málum? Þetta risaskref, lögfestingin, myndi stórbæta réttarstöðu fatlaðs fólks og öryrkja á Íslandi, en með því yrðum við eitt fyrsta landið í heimi sem tæki þetta stóra skref.

Ég spyr því: Ætlar ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur í alvörunni að koma í veg fyrir það? Ég hef sjaldan ef nokkurn tímann verið eins vonsvikinn og dapur með þessa ríkisstjórn. (Forseti hringir.) Þurfa öryrkjar í alvörunni að kaupa heilsíðuauglýsingar til að ná eyrum þessarar ríkisstjórnar?