151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

störf þingsins.

[11:59]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Hagræðing í ríkisrekstri er viðvarandi verkefni. Það er hlutverk fjármálaráðherra og í rauninni ríkisstjórnarinnar allrar að vinna stöðugt að því að koma auga á tækifæri til úrbóta. Það verður að segjast eins og er að svigrúmið er verulegt. Í tillögum samráðsvettvangs um aukna hagsæld kemur fram að aukin framleiðni hins opinbera sé besta leiðin til að ná jafnvægi í ríkisfjármálum án þess að skerða lífskjör. Eitt af því sem bent var á og skiptir máli er að vinna starfsfólks hjá stærri stofnunum nýtist betur en hjá þeim smærri. Að jafnaði sinnir tvöfalt fleira starfsfólk störfum sem falla utan kjarnasviðs þess hjá stofnunum með færri starfsmenn en 50, samanborið við stofnanir sem hafa fleiri starfsmenn en 50. Stærri stofnanir hafa líka betri möguleika á að uppfylla ákvæði stjórnsýslulaga en þau sem smærri eru. Það hefur umboðsmaður Alþingis m.a. bent á. Ávinningurinn er hins vegar enn fjölbreyttari. Smáar stofnanir hafa síður möguleika á því að laða til sín hæft starfsfólk vegna hættu á faglegri einangrun og takmörkuðum framtíðarmöguleikum í starfi. Smæðin eykur líka líkur á hárri starfsmannaveltu og dregur úr framleiðni. Um 60% ríkisstofnana falla í þennan flokk, þ.e. hafa 50 starfsmenn eða færri. Tæplega 20% hafa tíu starfsmenn eða færri.

Herra forseti. Þetta eru einfaldlega sóknarfæri. Við höfum góða reynslu af því að nýta okkur þessi sóknarfæri. Sameining skattembættanna skilaði sér í styttri afgreiðslutíma á erindum og kærum og tekjur af eftirliti jukust. Framlög ríkisins lækkuðu síðan um 17% á sama tíma. Svipaða sögu má segja af sameiningu lögregluembættanna á höfuðborgarsvæðinu. Þess vegna hef ég tilbúna þingsályktunartillögu um átak í sameiningu ríkisstofnana, kerfisbundið og faglegt, þar sem áhersla verður lögð á að einfalda ásýnd gagnvart almenningi og aukna hagræðingu í ríkisrekstri. (Forseti hringir.) Það er ljóst að ástæða er til að búast við góðum stuðningi hér í þinginu.