störf þingsins.
Herra forseti. Þar sem ég komst ekki að í óundirbúnum fyrirspurnum í gær vil ég nota tækifærið til að koma að nokkrum áhersluatriðum varðandi dóm yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu í Landsréttarmálinu þann 1. desember. Dómurinn er gríðarlega merkilegur, gæti ekki verið skýrari um að fordæma pólitísk afskipti af dómsvaldinu á Íslandi og hefur gríðarlegt fordæmisgildi fyrir öll aðildarríki Evrópuráðsins þegar kemur að pólitískum skipunum í dómstóla. Sérstaklega munu ríki á borð við Ungverjaland, Pólland og fleiri fyrrum Austur-Evrópuríki þurfa að horfa til niðurstöðunnar í fyrradag og búast má við viðbrögðum í þeim löndum vegna niðurstöðunnar. Það er ekki gaman fyrir Ísland sem rótgróið lýðræðisríki að skipa sér í hóp óþroskaðra lýðræðisríkja eins og sum fyrrum ríki Sovétríkjanna eru.
Það er vissulega slæmt fyrir Ísland að fá á sig þann áfellisdóm að það sé verið að brjóta á grundvallarreglum í mannréttindasáttmálanum eins og formaður Lögmannafélagsins sagði í fjölmiðlum í gær. Hún og fleiri, þar með talin sú sem hér stendur, hafa kallað eftir því að ríkisstjórnin bregðist skýrt við niðurstöðu Mannréttindadómstólsins og geri viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig. Hvað felst í því? Það þarf að fara yfir þau mál sem hafa komið fyrir Landsrétt og gætu fallið undir endurupptöku og það þarf að leysa mál sem heyra undir alla vega dómarann sem eftir er af þeim sem voru ranglega skipaðir og sóttu ekki um endurskipun. Ljóst er að bregðast þarf strax við stöðu hans og eins að fara yfir þau mál sem hinir dómararnir hafa dæmt í frá því að Landsréttur hóf störf. Undir þetta hefur Ragnhildur Helgadóttir, prófessor í lögfræði við Háskólann í Reykjavík, tekið og minnir á að íslenska ríkið sé samningsbundið til að koma málunum í rétt horf eftir dóminn.
Herra forseti. Það er mikið túlkunarstríð í gangi um niðurstöðu efri deildarinnar í Strassborg og margar rangfærslur hafa verið látnar fjúka í þeim tilgangi að túlka niðurstöðuna sér í hag, hvort sem það er pólitískt eða út frá stöðu sinni í lögfræðingastétt Íslands. En það verður að vera skýrt að Ísland lögfesti mannréttindasáttmála Evrópu árið 1994. Með lögfestingu samningsins var texti sáttmálans settur í heild sinni í íslensk lög og einstaklingum þar með gert kleift að byggja (Forseti hringir.) á ákvæðum hans fyrir innlendum dómstólum. Það er engin þjóðréttarlegur ágreiningur um það líkt og hæstv. fjármálaráðherra hefur látið í veðri vaka.
Ég vil hvetja ríkisstjórn Íslands til þess að sýna mannréttindasáttmálanum (Forseti hringir.) þá virðingu að hætta öllu túlkunarstríði og bregðast við af ábyrgð og auðmýkt (Forseti hringir.) gagnvart þeim réttindum sem í sáttmálanum felast.