sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Nú hefur Covid-faraldurinn staðið yfir í níu mánuði með grafalvarlegum afleiðingum fyrir líf og heilsu allra jarðarbúa. Farsóttarþreyta fer vaxandi meðal þjóða og við Íslendingar höfum ekki farið varhluta af því. En nú berast jákvæðar fréttir frá bóluefnaframleiðendum. Vonir vakna um að við sjáum ljósið við endann á göngunum. Á fundi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar nú 26. nóvember var greint frá því að samtals 47 bóluefni væru í ferli, fjögur þeirra komin lengst og talin veita 70–95% vörn. Reikna má með að fyrstu markaðsleyfin verði veitt fyrir áramót og að afhending bóluefna geti þá hafist innan nokkurra vikna.
Vinnuhópur heilbrigðisráðuneytisins hefur sinnt undirbúningi og framkvæmd á kaupum bóluefna á grundvelli samninga Evrópusambandsins við lyfjaframleiðendur. Íslandi og öðrum EFTA-ríkjum er tryggður sami aðgangur að bóluefnum og ríkjum Evrópusambandsins. Framkvæmdastjórn ESB hóf snemma undirbúning að samræmdri stefnu og viðbrögðum við útbreiðslu Covid-19. Vegna þess að ekki er vitað nákvæmlega hvaða bóluefni muni standast kröfur um virkni og öryggi útbjó ESB safn sem tilgreindi þá lyfjaframleiðendur sem rætt yrði við um kaup á bóluefni og sem vinna að gerð bóluefnis á mismunandi grunni til að hámarka möguleika á því að unnt sé að framleiða og dreifa bóluefni sem fyrst. Þegar liggja fyrir samningar framkvæmdastjórnarinnar við sex þeirra, m.a. AstraZeneca og Pfizer.
Framkvæmdastjórnin semur um heildarmagn frá hverjum framleiðanda og ákveður hvernig það skiptist á milli hlutaðeigandi þjóða. Hver þjóð gerir jafnframt beinan samning við þá framleiðendur sem hún hyggst kaupa af bóluefni. Af Íslands hálfu liggur fyrir samningur við AstraZeneca og samningur við Pfizer er langt kominn. Samningurinn við AstraZeneca felur í sér kaup á tæplega 230.000 skömmtum sem duga fyrir um 115.000 einstaklinga. Frá Pfizer eigum við kauprétt á 170.000 skömmtum sem duga fyrir 85.000 einstaklinga og með fleiri samningum sem eru í undirbúningi tryggjum við okkur nægt magn bóluefna.
Reglugerð mín um forgangsröðuðum við bólusetningu vegna Covid-19 hefur verið birt og þar var horft til leiðbeininga Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, sjónarmiða í sambærilegri vinnu nágrannaþjóðanna og ekki síst til þingsályktunar Alþingis um siðferðileg gildi við forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu. Það verður lögð áhersla á það að bólusetja fyrst þau sem eru í framlínunni í baráttu við sjúkdóminn, svo sem heilbrigðisstarfsfólk og annað starfsfólk á bráðamóttökum og gjörgæsludeildum og deildum fyrir sjúklinga sem hafa smitast af Covid-19, einnig heilbrigðisstarfsmenn sem framkvæma sýnatökur vegna sjúkdómsins og starfsfólk hjúkrunar- og dvalarheimila. Bólusetning einstaklinga sem dvelja á hjúkrunar- og dvalarheimilum og öldrunardeildum sjúkrahúsa verður einnig í miklum forgangi.
Sóttvarnalæknir ber ábyrgð á skipulagningu og samræmingu bólusetningar og er heimilt að víkja frá forgangsröðun reglugerðarinnar ef nauðsyn ber til.
Virðulegi forseti. Enn er ekkert bóluefni komið sem hefur markaðsleyfi í Evrópu nema neyðarleyfi fyrir Pfizer hefur nú verið samþykkt í Bretlandi. Gert er ráð fyrir að bóluefni frá Pfizer og AstraZeneca verði þar fyrst. Það er verið að ræða við aðila um dreifingarleiðir hér á landi en innkaup á búnaði til bólusetningar standa yfir. Það ætti að vera reiðubúið nú um miðjan desember. Við erum að vinna að gerð kynningarefnis fyrir almenning varðandi bólusetningarnar og fyrirkomulag bólusetninga í hverju heilbrigðisumdæmi ætti að liggja fyrir fljótlega.
Virðulegi forseti. Eina leiðin til að stöðva þennan faraldur er að samfélagið nái því sem kallað er hjarðónæmi. Til þess þurfa allt að 60–70% landsmanna að hafa ónæmi gegn veirunni en aðeins 5.000–6.000 Íslendingar hafa nú staðfest smit. Það er því óraunhæft að ætla að ná hjarðónæmi öðruvísi en með bólusetningum. Bólusetja þarf fólk með tveggja til þriggja vikna millibili og þá líða tvær til þrjár vikur þar til mótefnasvar er til staðar. Hjarðónæmi eftir bólusetningu næst því vart fyrr en í lok fyrsta ársfjórðungs næsta árs og mögulega síðar.
Það er óvíst hvort veiran getur tekið stökkbreytingum sem gerir bóluefnið óvirkt þótt vísbendingar séu um að þessi veira stökkbreytist síður en inflúensuveiran sem þarf að bólusetja við á hverju ári. Hvernig sem allt fer, er ráðlegt að við reiknum með því að fara að öllu með gát mögulega fram á næsta sumar.
Virðulegi forseti. Það er sannarlega ástæða til aukinnar bjartsýni í samfélagi sem hefur staðið sig ótrúlega vel í glímunni við Covid-19.