151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:11]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir yfirferð hennar hér og skýrslugjöf og vil taka fram hvað þessa þætti varðar, hvað dreifingu bóluefna og tengda þætti varðar, að ég tel málin vera í ágætisfarvegi. Ég ætla þess vegna að nýta tækifærið og fara inn á aðeins aðra þætti því að þó að upplýsingagjöfin hafi verið ágæt held ég að ekki sé ástæða til að fara mjög á dýptina hvað það varðar núna. Það mun auðvitað að ráðast að miklu leyti af því hvernig mál þróast hvað bóluefnið og annað varðar á erlendum vettvangi.

Það sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra að er það sem snýr að skipulögðu íþróttastarfi og þá sérstaklega starfi íþróttastarfi afreksflóttafólks. Runólfur Pálsson, læknir og einn af yfirmönnum Covid-göngudeildar Landspítala, kom í viðtöl 21. og 23. október sl. þar sem hann fór yfir það af mikilli yfirvegun, þótti mér, að hann teldi ekki skynsamlegt að afreksíþróttir og hin almenna íþróttaiðkun væru settar undir sama hatt.

Við heyrum neyðaróp, eða ég leyfi mér að kalla það það, frá körfuknattleiksmönnum. Í gær voru í viðtali á Stöð 2 tveir af bestu frjálsíþróttamönnum Íslands, Guðni Valur Guðnason og Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, sem spurðu einfaldlega spurningarinnar: Af hverju getum við ekki farið inn að æfa í frjálsíþróttaaðstöðu Laugardalshallar? Það fer nærri því að ekki sé bara hægt að halda 2 m reglu, það hallar í að hægt sé að halda 100 m reglu ef skipulagið er gott. Það skilur ekki nokkur maður að afreksíþróttafólkið sé sett undir sama hatt og við trimmararnir. Þetta hefur áhrif á meiðsli, framþróun, getu samanborið við aðra, og síðan blasir auðvitað við að afreksíþróttafólk keppir nú í öllum þeim löndum sem við berum okkur saman við. Ef við tökum bara körfuknattleik, handbolta og fótbolta, (Forseti hringir.) þá eru keppnir í gangi í öllum þeim löndum sem við berum okkur saman við. En fyrst er að hleypa þessu góða fólki á þann stað að (Forseti hringir.) það geti sinnt æfingum.