151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:13]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina eða kannski frekar vangavelturnar. Ég er efnislega algjörlega sammála hv. þingmanni um mikilvægi þessarar iðkunar. Ég hef fengið bréf og orðsendingar sem rökstyðja það enn þá frekar. Eins og hv. þingmanni er ljóst og hefur komið fram í fjölmiðlum, hefur sóttvarnalæknir gert tillögu til mín á fyrri stigum sem hann dró til baka núna á dögunum, þar sem gert er ráð fyrir því að heimila þessa starfsemi. Það er augljóslega næsta skref, ásamt því að hækka hámarksfjöldann og eins að opna verslanir betur en gert hefur verið, sem og sundstaði. Þannig að ég held að ef svo heldur fram sem horfir þá séu þetta augljóslega næstu skref og ekki síst vegna þess að talsmenn íþróttahreyfingarinnar, og sérstaklega þeirra hópa sem þarna er um að ræða, hafa haldið einkar vel á sínum málflutningi.