151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

sóttvarnarráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:14]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið og vil í framhaldinu velta því upp hvort þessi staða, þ.e. að það blasi við að þessi opnun, þessi tilslökun verði gerð, hafi ekki verið um nokkra hríð. Nú er tilvitnað viðtal við Runólf Pálsson lækni frá 21. október sl. Þar segir Runólfur m.a., með leyfi forseta: Mér finnst það eigi að fara að hyggja að því að byrja á æfingum með ákveðnum reglum. Ég er sammála því að fara sér mjög hægt varðandi áhorfendur þegar keppnin fer í gang. Við vitum hvar mesta hættan er á smiti og virðist það ekki tengjast skipulögðu íþróttastarfi.

Ég held að hvað akkúrat þetta atriði varðar hafi kannski ekki orðið mikill eðlisbreyting í töluverðan tíma. Þetta er það sem ákvarðanir erlendis í helstu samanburðarlöndum okkar virðast hafa verið byggðar á. Þess vegna vil ég skora á heilbrigðisráðherra að komi sú staða upp að sóttvarnalæknir leggi til að bíða enn um sinn með þessa tilslökun þá taki ráðherrann af skarið og leyfi æfingar, alla vega afreksíþróttafólks og keppnisfólks, því að sú staða sem við búum við núna er algerlega óviðunandi og hefur verið lengi. Það eru margþætt áhrif sem þessu fylgja, fyrir utan það hve mikil fylling fer úr hinu daglega lífi okkar almennings að geta ekki fylgst með því afreksíþróttafólki sem tekst á dagsdaglega okkur til skemmtunar.