sóttvarnarráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni brýninguna og heyri hvað hann segir. Þetta er auðvitað m.a. allt saman til umhugsunar. Það sem er og hefur verið mitt viðfangsefni í faraldrinum hingað til er fyrst og fremst að gæta að meginreglum stjórnsýsluréttarins, að við gætum meðalhófs í öllum okkar ákvörðunum, og ekki síður að við gætum jafnræðis þegar við reisum skorður við starfsemi, ég tala nú ekki um að takmarka heimildir fólks til athafna. Það er það sem er verkefni ráðuneytisins hverju sinni.
En ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á þessu vegna þess að ég held að þetta séu sjónarmið sem eigi fullan rétt á sér.